Terry: Ég vona að ég spili ekki aftur á tímabilinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. janúar 2017 10:30 John Terry vill ekki spila meira. vísir/getty
John Terry, miðvörður og fyrirliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, vonast til að hann spili ekki fleiri leiki fyrir liðið á þessari leiktíð því það þýðir að Englandsmeistaratitillinn endar væntanlega á Stamford Bridge. Hann kemst ekki í liðið því það vinnur næstum alla leiki. Terry er rótfastur við varamannabekkinn hjá Chelsea sem er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar undir stjórn Antonio Conte. Liðið mætir Liverpool í kvöld í stórleik en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Miðvörðurinn byrjaði þrjá leiki í ágúst í fyrra og einn september en síðan þá hefur John Terry ekki komist í byrjunarlið Chelsea. David Luis og Gary Cahill eru á undan honum í goggunarröðinni. „Það sem skiptir máli er að liðið er á flugi og að spila frábærlega. Stundum er ekkert sem maður getur gert sem leikmaður. Ég byrjaði fyrstu fjóra leiki tímabilsins en svo meiðist ég og við töpum á móti Liverpool. Þá var stjórinn að spyrja mig hvenær ég yrði klár,“ segir Terry í viðtali við Daily Mirror. „Eftir það vinnum við þrettán leiki í röð og þá kemst maður ekkert aftur í liðið. Þetta er eitthvað sem maður þarf að sætta sig við sem leikmaður.“ „Conte er búinn að vera heiðarlegur við mig frá fyrsta degi. Hann segir bara að ég kemst ekki í liðið á meðan það er að spila svona vel. Ég meina það samt og segi heiðarlega að ég vona að ég spili ekki aftur á þessari leiktíð því það þýðir að liðið heldur áfram að vinna leiki,“ segir John Terry.
Enski boltinn Mest lesið Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stúkan fer yfir magnaða helgi Sport Fleiri fréttir „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Sjá meira