Innlent

Ráðist á strætóbílstjóra í Reykjanesbæ

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lögregla óskar eftir aðstoð vegna árásar í Reykjanesbæ klukkan 17:25 í dag en árásin náðist á myndband.
Lögregla óskar eftir aðstoð vegna árásar í Reykjanesbæ klukkan 17:25 í dag en árásin náðist á myndband. Vísir/Ernir
Ráðist var á ökumann strætó í Reykjanesbæ klukkan 17:25 í dag. Vitni urðu að atburðinum og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum tóku einhverjir árásina upp á snjallsíma.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum biður þá sem hafa fengið myndskeiðið sent að senda það á lögreglu.

Allir þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir að setja sig í samband við lögregluna á Suðurnesjum í gegnum skilaboð á Facebook eða í síma 444-2200.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×