Innlent

Ekki búið að hækka sektir við snjallsímanotkun ökumanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stór hluti nemenda í framhaldsskólum notar snjallsíma undir stýri. Flestir tala í símann.
Stór hluti nemenda í framhaldsskólum notar snjallsíma undir stýri. Flestir tala í símann. NordicPhotos/Getty
Sektir fyrir að nota síma í akstri án handfrjáls búnaðar hafa ekki enn verið hækkaðar. Greint var frá því í byrjun júlí að ríkissaksóknari hefði sent þá tillögu til ráðherra að hækka sektirnar úr 5 þúsund krónum í 40 þúsund krónur.

„Það er ekki búið að hækka eitt eða neitt,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri í umferðardeild lögreglunnar. „Það er ekki komin fram ný reglugerð. Þetta er 5 þúsund króna sekt og ef menn borga innan 30 daga þá eru þetta 3.750, sem hefur ekkert forvarnargildi að mínu mati. Ég held að allir sem tala fyrir bættu umferðaröryggi vilji sjá þetta ganga fram,“ segir Guðbrandur við Fréttablaðið.

Guðbrandur Sigurðsson
Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir að ráðherrann hafi sett málið í samráðsferli og óskað eftir umsögnum. Í framhaldi hafi ráðherra sett Samgönguþing unga fólksins og þá kallað eftir sjónarmiðum yngra fólks. Þar var samþykkt ályktun. Í henni kemur fram að laga þurfi „regluverkið að aukinni snjalltækjanotkun í umferðinni. Hækka þarf sektir fyrir notkun þeirra undir stýri og skoða kosti og galla kerfis þar sem sektir eða refsingar komi jafnt við alla tekjuhópa í landinu.“

Vigdís segir að í framhaldinu verði málið svo tekið upp í heildarendurskoðun á umferðarlögunum, vegna þess að reglugerðir þurfi alltaf að eiga heimildir í lögum. „Það er staðan og það er verið að vinna í heildarendurskoðun laganna og þessi breyting verður gerð samhliða,“ segir Vigdís sem gerir jafnframt ráð fyrir að nýr ráðherra verði tilbúinn með frumvarp um breytingu á umferðarlögum í febrúar. Á hinn bóginn verði næsta þing mjög stutt vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor.

Í könnun sem Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík gerði og Fréttablaðið sagði frá um miðjan ágúst kom fram að fimm af hverjum sex framhaldsskólanemum hér á landi notar snjallsíma undir stýri. Notkun eykst með hækkandi aldri.

Á vef tryggingafélagsins Sjóvár kemur fram að flestir, eða 71 prósent, tala í símann, 58 prósent leita að upplýsingum á netinu, 44 prósent senda eða svara texta­skilaboðum og helmingur sendir Snapchat. Þá skoðar rúmur fjórðungur samfélagsmiðla og 12 prósent horfa á vídeóklippur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×