Hlaut titilinn Rödd ársins Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. febrúar 2017 10:45 Marta Kristín mun fara með hlutverk Pamínu í Töfraflautunni eftir Mozart. Vísir/Anton Brink
Mér fannst æðislegt að komast svona langt. Það kom mér á óvart,“ segir Marta Kristín Friðriksdóttir sem sigraði í opnum flokki söngkeppninnar Vox Domini nýlega og var valin rödd ársins 2017. Að launum fær hún að halda tónleika í Kaldalóni í Hörpu. Hún kveðst ung hafa byrjað að syngja. „Ég var í Stúlknakór Reykjavíkur frá því ég var sex, sjö ára hjá henni Margréti Pálmadóttur og byrjaði einsöngsnám í söngskólanum hennar, Dómus Vox.“ Marta Kristín tók 8. stig í Söngskóla Reykjavíkur vorið 2016 eftir fjögurra ára nám hjá Signýju Sæmundsdóttur og undirbýr sig nú undir inntökupróf í Vínarháskóla. „Ég fer út 18. febrúar, prófið byrjar 20. og stendur í fjóra daga. Mamma ætlar með mér að veita mér andlegan stuðning,“ lýsir hún. Fyrir utan inntökuprófið í Vín og tónleikana í Kaldalóni fer Marta Kristín með hlutverk Pamínu, dóttur næturdrottningarinnar í nemendaóperunni Töfraflautunni sem Söngskólinn er að setja upp og verður flutt 12. febrúar í fullri lengd. Hún viðurkennir að nóg sé að gera. „Það eru endalausar æfingar alla daga,“ segir hún glaðlega. Þess má geta að tveir aðrir keppendur í Vox Domini, þeir Ari Ólafsson sem var í 1. sæti á framhaldsstigi og Gunnar Björn Jónsson sem var í 2. sæti í opnum flokki, fá einnig að halda tónleika. Það verða dúetttónleikar í Hafnarborg með Antoniu Hevesi píanóleikara. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. febrúar 2017
Menning Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira