Hefur þú spilað áður í Hörpu? Já, einu sinni á Landsmóti strengjanemenda, þá var ég reyndar svo lítil að ég sá ekki þann sem stjórnaði hljómsveitinni!
Hvar lærir þú? Tónlistarskólinn minn er í Varmahlíð sem er ekkert svo langt frá Grænumýri, stundum fer ég á Sauðárkrók í samspil og það er lengra. Ég er líka að læra söng hjá Helgu Rós Indriðadóttur óperusöngkonu í Varmahlíð.

Fleiri áhugamál? Hestamennska, dans, dýr, lestur og að teikna og mála, baka, smíða og sauma. Bara alveg heill hellingur.
Ertu mikið fyrir búskapinn? Já, við búum á sauðfjárbúi og eigum um 600 kindur og 27 geitur, nokkur hross, hunda og kanínu. Núna er að byrja sauðburður og það eru komin nokkur lömb og fullt af kiðlingum. Svo eru líka sjö hvolpar. Ég hef verið í reiðtímum á Varmalæk á hestinum mínum henni Eldingu og okkur gengur bara vel saman.
Það skrítnasta sem hefur komið fyrir þig? Hmmm, þetta er erfið spurning, en eitt af því fyndnasta var þegar ég var lítil og datt með andlitið beint ofan í hrossaskítshrúgu!