Enski boltinn

West Ham samþykkir tilboð Marseille í Payet

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Payet í leik með West Ham í janúar.
Payet í leik með West Ham í janúar. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum SkySports hefur West Ham tekið tilboði Marseille í franska landsliðsmanninn Dimitri Payet en samkvæmt fréttastofunni greiðir franska félagið 25 milljónir punda fyrir Payet.

Payet hefur fengið heimild til að ferðast til Frakklands og gangast undir læknisskoðun hjá félaginu sem hann lék áður en hann skipti yfir til West Ham fyrir aðeins átján mánuðum.

Payet sló í gegn á fyrsta tímabili sínu í ensku úrvalsdeildinni sem og Evrópumótinu í Frakklandi í sumar en hann hefur ekki náð sama flugi í enska boltanum í vetur.

Bilic staðfesti á blaðamannafundi á dögunum að Payet hefði óskað eftir sölu frá félaginu.

West Ham hefur áður hafnað tilboði upp á 22,5 milljónir punda í mannin sem þeir greiddu tæplega ellefu milljónir punda fyrir sumarið 2017.

Payet sem skrifaði undir nýjan samning fyrir tæplega ári síðan hefur gefið það til kynna að hann sé að flytja aftur til Marseille vegna fjölskyldu sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×