Bíó og sjónvarp

Hildur sér um tónlistina í Sicario 2

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Hildur Guðnadóttir er búsett í Berlín þessi misserin.
Hildur Guðnadóttir er búsett í Berlín þessi misserin. Vísir/Valli

Hildur Guðnadóttir tónskáld mun sjá um tónlistina í Hollywood-myndinni Soldado, framhaldi kvikmyndarinnar Sicario sem kom út árið 2015, en um tónlistina í þeirri mynd sá Jóhann Jóhannsson. Hildur kom reyndar töluvert við sögu í þeirri hljóðrás því að hún spilaði þar á selló en hún og Jóhann hafa unnið saman um árabil.

Hildur samdi tónlistina fyrir Eiðinn, Ófærð og Tom of Finland og hefur unnið að tónlist fyrir myndir eins og Arrival, The Revenant og Prisoners. Ítalski leikstjórinn Stefano Sollima leikstýrir Soldado en það var Denis Villeneuve sem sá um leikstjórn í Sicario og leikstýrði einnig Prisoners og Arrival, myndum sem Hildur kom að.

Soldado fjallar eins og Sicario um átök lögreglu og glæpahópa á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Þar ríkir ákveðið stríðsástand og mun Soldado fjalla um hervæðingu lögreglunnar. Með aðalhlutverk fara Josh Brolin, Benicio Del Toro og Matthew Modine.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.