Jones: Aðeins þrír stjórar hafa trú á mér og Van Gaal var ekki einn þeirra Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. febrúar 2017 12:45 Phil Jones. vísir/getty
Phil Jones, miðvörður Manchester United, viðurkennir að hann íhugaði að yfirgefa Old Trafford í sumar eða þar til José Mourinhi mætti á svæðið. Hann er ánægður með lífið undir stjórn Portúgalans. Jones átti í miklum vandræðum með að koma sér í liðið hjá Louis van Gaal og íhugaði að fara frá United til þess að geta spilað reglulega. Van Gaal fannst Jones aldrei vera í standi. „Af einhverjum ástæðum fannst Van Gaal alltaf að ég þyrfti að vera í betra formi. Ég hafði ekkert út á það að setja, ég spilaði bara leikina. Ég gerði það sem ég gat til að komast aftur í liðið en því miður gengu hlutirnir ekki upp fyrir mig þegar hann stýrði liðinu,“ segir Jones í viðtali við Manchester Evening News. „Það er engin spurning að framtíð mín var í óvissu. Það er alltaf þannig ef maður er ekkert að spila.“ Nú er lífið hjá miðverðinum miklu betra þar sem hann er orðinn fastamaður í vörn Manchester United sem er í baráttunni um Meistaradeildarsæti og enn á lífi í þremur bikarkeppnum. „Það hafa aðeins þrír stjórar trú á mér og skilja mig sem leikmann. Ég er ekki að gagnrýna hina stjórana en þetta eru Sam Allardyce, Sir Alex Ferguson og núna José Mourinho. Þeir hafa trú á mínum hæfileikum. Það þarf ekkert að klappa mér á bakið alla daga en þessir þrír gáfu mér sjálfstraust,“ segir Phil Jones.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Leik lokið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram Íslenski boltinn Varafyrirliði Real Madrid sleit krossband Fótbolti Í beinni: Breiðablik - Valur | Allt lagt undir í Kópavogi Íslenski boltinn Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Enski boltinn Fyrirliði Íslandsmeistaranna hætt Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Sjá meira