Við deyjum 100 sinnum á degi hverjum Bryndís Bjarnadóttir skrifar 28. mars 2017 16:18 Við deyjum 100 sinnum á degi hverjum Þannig lýsir hinn 26 ára gamli Yousif Ajaj flóttamaður frá Sýrlandi upplifun sinni af verunni í flóttamannabúðum í Grikklandi og bætir við að „dýr gætu ekki einu sinni búið við þessar aðstæður“. Straumur flóttafólks til Evrópu frá stríðshrjáðum löndum fyrir botni Miðjarðarhafs og í Norður-Afríku náði hámarki árið 2015 þegar milljón manns hættu lífi sínu til að flýja heimaland sitt, langflestir sjóleiðina, í leit að öryggi og vernd í álfunni. Meirihluti flóttafólksins flúði stríðsátök í Sýrlandi en aðrir komu frá Afganistan, Írak, Erítreu, Súdan og fleiri löndum. Margir lifðu af stríðsátök, ofsóknir og örbirgð í heimalandinu en fórust á leið sinni til Evrópu því að öruggar og lagalegar leiðir eru ekki tryggðar. Tæplega 9000 konur, karlmenn og börn týndu lífi sínu á leiðinni til Evrópu á árunum 2015 og 2016, aðrir hurfu sporlaust eða sættu margvíslegu ofbeldi af hálfu glæpagengja, smyglara eða manseljenda. Hvernig brást Evrópa við? Hún víggirti landamæri sín, setti flóttafólk í varðhald, meira að segja börn, beitti þvingunaraðgerðum og ofbeldi til skrá fingraför hælisleitenda og gerði tvíhliða samninga við önnur lönd um ólöglegar endursendingar, lönd þar sem mannréttindi eru fótum troðin. Víða í Evrópu lætur flóttafólk lífið vegna óviðunandi aðstæðna, kulda og sjúkdóma sem vel er hægt að meðhöndla ef aðgengi að heilbrigðisþjónustu er tryggt. Í fæstum flóttamannabúðum er hugað að þörfum viðkvæmra hópa eins og fatlaðra, eldra fólks, þungaðra kvenna og fylgdarlausra barna. Rúmlega 60.000 flóttamenn og hælisleitendur sem komu til Grikklands á árunum 2015 og 2016 eru nú strandaglópar í 50 flóttamannabúðum víðs vegar um grísku eyjarnar. Með lokun svokallaðrar Balkanleiðar, þ.e. landamærum Makedóníu að Grikklandi í suðri, hvarf von margra hælisleitenda um að geta haldið för sinni áfram til annarra Evrópuríkja, jafnvel til að sameinast fjölskyldum sínum þar. Eini valkostur þeirra nú er að sækja um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Það er hins vegar ekki auðsótt þar sem ríkið lamaðist í kjölfar efnahagskreppunnar árið 2009 og á langt í land með að ná sér á strik. K.A. er lögfræðingur frá Sýrlandi. Hann flúði heimaland sitt ásamt syni sínum, tengdadóttur og tveimur barnabörnum, níu og fjögurra ára. „Í Sýrlandi aðstoðaði ég pólitíska fanga. Þrír samstarfsfélagar mínir, einnig lögfræðingar, voru handteknir og hurfu í kjölfarið. Þegar heimili mitt var lagt í rúst í sprengjuregni í Damaskus flutti ég til Raqqa en þar voru hryðjuverkasamtökin ISIS fyrir. Ég óttaðist að vera handtekinn vegna starfa minna og trúleysis. Ég fór í felur í eitt ár. Seinna fannst mér ég ekki eiga annara kosta völ en að yfirgefa Sýrland.“ Í september flúði fjölskyldan til Tyrklands. Þá var tengdadóttir K.A. langt gengin og gat því ekki haldið för sinni áfram. Sonur K.A. lagði upp í ferðalag til Þýskalands í þeirri von fjölskyldan myndi sameinast honum síðar. Það hefur ekki enn gengið eftir. Þann 18. febrúar 2016 tókst fjölskyldunni, ásamt 20 daga gömlu barni, að komast yfir Eyjahafið og ná að ströndum Grikklands. Þau enduðu í bráðabirgða flóttamannabúðum í Idomeni nálægt landamærum Makedóníu í norðri. Þar sem Balkanleiðin var enn opin fyrir Sýrlendinga á þessum tíma trúði K.A. því að aðeins væri dagaspursmál hvenær fjölskyldan gæti sameinast syninum í Þýskalandi. „Þegar við komum til Idomeni var rigning. Mikil ringulreið var á staðnum og mjög sóðalegt. Við lögðumst til hvílu við ömurleg skilyrði. Allt í einu varð ég veikur og lagðist inn á spítala í tíu daga. Þegar spítaladvölinni lauk hafði makedóníska lögreglan lokað landamærunum fyrir alla og við sátum föst.“ Mikil óvissa ríkir um framtíð K.A. og fjölskyldu hans en hann hefur reynt að hafa samband við útlendingastofnun Grikklands svo mánuðum skiptir. Flóttamannabúðirnar í Grikklandi eru flestar einungis búnar tjöldum sem eru ekki einu sinni ætluð til skammtímadvalar og halda hvorki veðrum né vindum. Þá er salernis – og sturtuaðstaða mjög bágborin en oft eru 500 manns um eitt salerni og aðstaðan ekki kynjaskipt sem setur konur og stúlkur í hættu á að verða fyrir hvers kyns ofbeldi sem þær vita ekki hvert þær eiga að tilkynna. Í júlí 2016 ræddi Amnesty International við fimm konur sem tilheyra Yezidi minnihlutahópi í norður Írak og dvelja við ömurleg skilyrði í flóttamannabúðum í norðurhluta Grikklands. Þær flúðu árið 2014, ásamt fjölskyldum sínum, árásir ISIS sem stunduðu þjóðarhreinsanir gegn minnihlutahópum í norður Írak þar sem konur og stúlkur voru pyndaðar, sættu grimmilegum nauðgunum og voru þvingaðar í hjónabönd eða kynlífsþrælkun. Þrátt fyrir ofsóknir og kynbundið ofbeldi sem Yezidi-konurnar þurftu að þola í Írak fengu þær engan stuðning eða vernd í Grikklandi til að takast á við áföllin sem hernaður ISIS olli. Konurnar lýstu því allar fyrir Amnesty International hvernig óöryggi þeirra í flóttamannabúðunum ýtti undir og viðhélt angistinni sem fylgdi reynslu þeirra af stríðsrekstri ISIS. Hundruð þúsunda kvenna, barna og karlmanna halda áfram að leggja upp í lífshættulega sjóferð, á vanbúnum bátum í leit að griðlandi innan Evrópu, aðallega í Grikklandi og Ítalíu sem eru í framlínu flóttamannastraumsins. Bregðast verður við þeirri brýnu og miklu neyð sem flóttafólk býr við, ef ríki heims ætla ekki að láta óátalda þá þjáningu sem hægt er að koma í veg fyrir hjá milljónum manna. Raunhæft fyrirkomulag um samábyrgð ríkja getur bjargað milljónum frá eymd og dauða af völdum drukknunar eða sjúkdóma. Ísland er í hópi þeirra ríkja sem getur boðið flóttafólki raunverulegar, öruggar og löglegar flóttaleiðir undan stríði og átökum. Alþjóðleg vernd er ekki gjöf til flóttafólks heldur sjálfsagður réttur þeirra sem tryggður er í alþjóðalögum. Viðbrögð íslenskra stjórnvalda nú er prófsteinn á það hvort að Ísland axlar sómasamlega þá ábyrgð sem hvílir á því að taka þátt í að leysa þetta mikla neyðarástand mannréttinda á okkar tímum. Íslandsdeild Amnesty International hvetur Íslendinga til að taka þátt í áskorun til íslenskra stjórnvalda um að gera meira til hjálpa fólki á flótta með því að setja sér nú þegar markmið um verulega aukningu í móttöku kvótaflóttafólks á árinu 2017 og grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að þau markmið muni nást. Hægt er að taka þátt í undirskriftasöfnun deildarinnar á www.netakall.is. Höfundur er herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sýrland Mest lesið Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson Skoðun Ríkisstjórnin þarf aðhald Svandís Svavarsdóttir Skoðun Rauð viðvörun í íslenska menntakerfinu Tinna Steindórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson skrifar Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir skrifar Skoðun Sjúkraflug í vondri stöðu - hvenær verður brugðist við? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi Framsóknarflokksins Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Viltu vinna með framtíðinni? Helga Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Færum fanga úr fortíðinni Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Getur hver sem er sinnt besta starfi í heimi? Sveinlaug Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um listamannalaun IV Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna skrifar Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar Skoðun Minnihlutavernd í fjöleignarhúsum Sigurður Orri Hafþórsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf aðhald Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Undir faglegri leiðsögn kennara blómstra börn Jónína Hauksdóttir skrifar Skoðun Donald Trump og tollarnir Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Rauð viðvörun í íslenska menntakerfinu Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Varasjóður VR Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Allar konur eru konur. Punktur. Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hver er ábyrgð barna? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Rafbílar eru ódýrari Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar
Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar
Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar
Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar
Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar