
Framtíð menntakerfisins: Við getum fjölgað kennurum
Ef fram fer sem horfir blasir við mikill skortur á grunnskólakennurum á næstu áratugum og nú þegar vantar um 1300 leikskólakennara og fer sú tala hækkandi. Skýringar á þessari stöðu eru fjölmargar og má þar nefna neikvæða umræðu um kennara og kennarastarfið. Einnig hefur ungt fólk í dag mun fleiri valkosti um nám en áður.
Finnska menntakerfið
Vestrænar þjóðir hafa gjarnan litið til finnska menntakerfisins sem fyrirmyndar. Það höfum við Íslendingar líka gert. Við nýlega endurskoðun á kennaranáminu við Háskóla Íslands hefur m.a. verið litið til finnskra háskóla. Menntun skipar mikilvægan sess í ímynd finnsku þjóðarinnar og Finnar eru meðvitaðir um mikilvægi menntakerfisins fyrir framþróun samfélagsins. Stjórnmálamenn í Finnlandi hafa sýnt framsýni og lagt áherslu á uppbyggingu menntakerfisins, þegar þjóðin hefur staðið frammi fyrir erfiðum efnahagslegum aðstæðum.
Kennarar í Finnlandi njóta mikillar virðingar og eru mikils metnir í finnsku samfélagi. Afar mikill áhugi er á kennaranámi og mikil samkeppni er um að komast í námið. Við Háskólann í Oulu fá t.d. einungis um 15% umsækjenda skólavist að undangengnum bæði inntökuprófum og ítarlegum viðtölum.
Kennaranám við Háskóla Íslands
Kennaranám er nú 5 ára háskólanám. Stærsti hópurinn sem stundar kennaranám innritast á fyrsta ár og lýkur fimm ára meistaranámi sem felur í sér töluverðra sérhæfingu. Þá hefur vaxandi fjöldi nema, sem lokið hafa BA/BS-prófi í ýmsum greinum, innritast í námið og bætt við sig tveggja ára meistaranámi til að öðlast starfsréttindi sem kennari.
Kennaraskortur – hvað er til ráða?
Til að bregðast við kennaraskorti í landinu þarf að grípa til róttækra aðgerða. Laða þarf fólk að kennaranámi, koma til móts við þá sem sækja í námið og jafnframt styðja við þá sem þegar eru í starfi.
Nágrannaþjóðir okkar hafa sumar farið þá leið að veita þeim fjárhagslegan stuðning sem fara í kennaranám, t.d. með beinum styrkjum við útskrift eða í gegnum námslána- og skattakerfið. Stór hópur þeirra, sem stunda kennaranám nú um stundir, hefur reynslu af því að starfa í skólum og margir þeirra stunda námið meðfram vinnu. Nokkur sveitarfélög hafa stutt við starfsfólk sem er í námi, en betur má ef duga skal. Nemum, sem stunda vinnu með námi sækist oft námið seint, námstími þeirra er langur og þeir hætta frekar í námi.
Kennaranám þarf að vera áhugaverður valkostur fyrir ólíka hópa. Með endurskoðun kennaranámsins við HÍ hefur verið leitast við að koma til móts við ólíkar þarfir fólks. T.d. hefur verið boðið upp á þrepaskipt leikskólakennaranám þar sem fólk getur lokið tveggja ára diplómunámi eða þriggja ára B.Ed.-námi í leikskólafræði og byggt ofan á það nám þegar hverjum og einum hentar. Jafnframt gefa hugmyndir um endurskoðun kennaranáms við HÍ möguleika á að nemar á lokaári verði í launuðum námsstöðum í skólum undir handleiðslu kennara á vettvangi og háskólanna. Til að svo megi verða þurfa sveitarfélög að ráða til sín kennaranema í námsstöður og greiða þeim laun til samræmis við nýja stöðu.
Mikilvægt er að sporna við brottfalli kennara úr starfi og styðja við kennara eftir að námi lýkur. Kennarastarfið hefur breyst gífurlega á undanförnum árum í takt við örar samfélagsbreytingar. Kennarar dagsins í dag þurfa að takast á við fjölbreytt viðfangsefni í starfi sínu og vinna með margbreytilega nemendahópa. Þeir þurfa að undirbúa nemendur sína fyrir líf og störf í samfélagi framtíðarinnar sem enginn veit hvernig muni verða. Kennarar þurfa því að hafa fjölbreytt tækifæri til símenntunar og starfsþróunar til að bæta við þekkingu sína og efla faglegan styrk. Símenntun stendur kennurum til boða í þeim háskólum sem mennta kennara. Gera þarf kennurum kleift að sækja reglulega námskeið og ráðstefnur og jafnframt að byggja upp lærdómssamfélög innan skólanna.
Kominn tími á aðgerðir
Framþróun og velferð þjóðarinnar byggir á góðu menntakerfi. Í nýlegri skýrslu OECD um kennaramenntun er því haldið fram að menntakerfi geti aldrei orðið betri en kennararnir sem í þvi starfa. Skortur á kennurum í skólum landsins er því háalvarlegt mál. Hér hafa verið raktar leiðir sem sveitafélög, samtök kennara, ráðuneyti menntamála- og kennaramenntastofnanir þurfa að hrinda í framkvæmd til að bregðast við kennaraskorti í landinu. Menntavísindasvið Háskóla Íslands vill gjarnan eiga samstarf við þessa hagsmunaaðila um raunhæfar aðgerðir til að leysa vandann. Til að fjölga nemum er brýnt að veita þeim sem fara í kennaranám fjárhagslegan stuðning, líkt og sumar nágrannaþjóðir okkar hafa gert. Sveigjanlegt kennaranám, eins og boðið er upp á við Háskóla Íslands, gefur fleirum möguleika á að stunda námið. Launaðar námsstöður fyrir kennaranema á lokaári er fýsilegur kostur og faglegur stuðningur við kennara í starfi er nauðsynlegur. Að endingu er það verkefni samfélagsins í heild að tryggja sess og virðingu kennarastarfsins til að unnt sé að gera kennslu að eftirsóknarverðum starfsvettvangi.
Höfundur er forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Skoðun

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar