Viðskipti innlent

Var í kosningastjórn Guðna Th. og stýrir nú þingflokki Viðreisnar

Haraldur Guðmundsson skrifar
Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.
Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Mynd/Aðsend
Stefanía Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnmálaflokksins og segir þar að Stefanía hafi áður starfað sem verkefnastjóri viðburða á markaðssviði Háskólans í Reykjavík. Einnig hafi hún unnið við viðburðarstjórnun, markaðsmál og ferðaþjónustu.

„Stefanía var kosningastjóri Viðreisnar í nýliðnum kosningum og einnig var hún í kosningastjórn Guðna Th. Jóhannessonar. Stefanía útskrifaðist með BA gráðu í listrænni viðburðastjórnun árið 2011 frá Rose Bruford College í London, þar sem hún var fyrst erlendra nema í skólanum kosin forseti stúdentaráðs skólans," segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×