Enski boltinn

Leikmaður Sunderland dæmdur í fjögurra leikja bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Djilobodji sló til Darrens Fletcher.
Djilobodji sló til Darrens Fletcher. vísir/getty
Papy Djilobodji, varnarmaður Sunderland, missir af næstu fjórum leikjum liðsins eftir að hafa verið fundinn sekur um ofbeldisfulla hegðun.

Djilobodji sló til Darrens Fletcher í leik Sunderland og West Brom á laugardaginn. Dómarar leiksins misstu af atvikinu en það náðist á myndband.

Djilobodji fékk þriggja leikja bann sem var svo lengt um einn leik vegna brottvísunar sem Senegalinn fékk fyrr á tímabilinu.

Djilobodji missir af heimaleikjum gegn Tottenham og Southampton og útileikjum gegn Crystal Palace og Everton.

Sunderland er í erfiðri stöðu á botni ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×