Kaupaukakerfi Kviku banka lagt niður eftir rannsókn FME Hörður Ægisson skrifar 4. október 2017 07:00 Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segist ekki geta tjáð sig um málið á þessu stigi.
Fjármálaeftirlitið (FME) telur að Kvika banki hafi fyrr á árinu brotið gegn reglum um kaupauka samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki þegar starfsmenn, sem voru B-hluthafar, fengu samtals um 400 milljónir í arðgreiðslur. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur Kvika banki óskað eftir því að ljúka málinu gagnvart FME með sátt og greiðslu sektar. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, sagðist í samtali við Markaðinn ekki geta tjáð sig um málið á þessu stigi. Hefur bankinn nú þegar innleyst þau bréf sem starfsmenn höfðu átt sem eigendur B-hluta í bankanum og gaf þeim rétt til arðs sem nam tilteknum hluta af árlegum hagnaði bankans. Fjármálaeftirlitið hóf síðastliðið vor rannsókn á því hvernig arðgreiðslum til handa starfsmönnum ýmissa smærri fjármálafyrirtækja, meðal annars Kviku og verðabréfafyrirtækisins Arctica Finance, væri háttað í þeim tilfellum þar sem þeir eiga bréf í félögunum sem B, C eða D-hluthafar. Rannsókn FME, samkvæmt heimildum Markaðarins, kom í kjölfar þess að blaðið greindi frá því í lok mars á þessu ári að hópur starfsmanna Kviku, sem þá voru eigendur B-hluta í bankanum, hefðu fengið samanlagt hundruð milljóna króna í sinn hlut í arð vegna góðrar afkomu bankans á árinu 2016. FME telur að greiðslurnar til starfsmanna Kviku hafi í reynd verið kaupaukar en ekki hefðbundnar arðgreiðslur til hluthafa. Þær séu því brot á reglum eftirlitsins um kaupauka fjármálafyrirtækja sem kveða á um slíkar greiðslur til handa starfsmönnum megi ekki vera meiri en sem nemur 25 prósentum af árslaunum þeirra og þá skuli ávallt fresta að lágmarki 40 prósent greiðslunnar í að minnsta kosti þrjú ár. Reglur um kaupaukagreiðslur íslenskra fjármálafyrirtækja eru mun strangari en í samanburði við þær reglur sem gilda innan Evrópusambandsins.Lífeyrissjóður verslunarmanna sá eini sem var á móti Samtals námu arðgreiðslurnar til starfsmanna Kviku sem fyrr segir ríflega 400 milljónum. Þær grundvölluðust á samþykkt frá því á hluthafafundi í júní 2016 þar sem stjórn Kviku var heimilað að hækka hlutafé félagsins til að mæta fyrirhuguðum kaupréttarsamningum í samræmi við kaupaukakerfi bankans. Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem þá var stærsti einstaki hluthafi fjárfestingabankans með tæplega tíu prósenta hlut, var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði gegn tillögunni. Samkvæmt samþykktum Kviku áttu eigendur B-hluta í bankanum rétt til arðs sem næmi 35 prósentum árlegs hagnaðar fyrir tekjuskatt, að því marki sem hagnaður er umfram 6 prósent arðsemi eigin fjár. Á síðasta ári nam hagnaður Kviku banka um 1.930 milljónum eftir skatt og var arðsemi eigin fjár tæplega 35 prósent. Samhliða því að stjórn Kviku ákvað í júlí síðastliðinn að innleysa öll hlutabréf í B-flokki var samþykkt heimild til hækkunar hlutafjár í A-flokki til samræmis við útgefin áskriftarréttindi sem starfsmönnum bankans stæði til boða. Allt frá því að reglur FME um kaupaukakerfi voru settar árið 2011 hafa þær sætt gagnrýni, einkum af hálfu smærri fjármálafyrirtækja, sem telja þær ýta undir launaskrið og hafa neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu þeirra gagnvart stóru bönkunum þar sem fastur rekstrarkostnaður er hlutfallslega mun minni. Því fóru sum íslensk fjármálafyrirtæki þá leið að gera lykilstarfsmenn sína að hluthöfum, sem hefðu þó ekki atkvæðarétt sem B, C eða D-hluthafar, og umbuna þeim í formi arðgreiðslna sem tæki mið af afkomu hvers árs.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira