
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur sömu sögu að segja um upplifun sína af fundi formanna flokkanna. Hún segir að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið jákvætt í að sameinast um nýtt breytingarákvæði við stjórnarskrá.
Aðspurður hvað felist í þessum bráðabirgðalögum svarar Logi: „Það er í rauninni styttur sá tími sem nauðsynlegur er til að menn fái efnislega meðferð. Síðan er í frumvarpinu setning sem var í upphaflega frumvarpinu en komst ekki inn í lögin sem hnykkt er á því að það eigi sérstaklega að horfa til viðkvæmra stöðu barna. Það er í greinargerð með þeim.“
Logi ítrekar að það sé Alþingi sem marki stefnuna en ekki stjórnvöld. Þá er þess krafist að litið sé til sjónarmiða barna: „Ég er að tala um að börn séu meðhöndluð sem sjálfstæðir einstaklingar. Að það sé hlustað á þau og þau tekin fyrir sérstaklega. Að það sé litið til þeirra sjónarmiða og þeirra hagsmuna. Að þau séu ekki afgreidd eins og hver annar farangur með foreldrum sínum. Bæði í Barnalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru skýrar reglur og skýr fyrirmæli um það að stöðugleiki og öryggi og sjónarmið barna eigi að vera það sem að skiptir máli.“
„Samkvæmt mínum skilningi er algjörlega óboðlegt að alþingi starfi með þeim hætti að það séu gerð hrossakaup þegar kemur að svona málum,“ segir Logi sem segir ennfremur að niðurstaða fundarins hafi verið að gera bráðabirgðabreytingar á útlendingalögum, sem fyrr segir, sem Logi segir að eigi að tryggja stúlkunum tveimur, Haniye og Mary öryggi og dvalarleyfi á Íslandi. „Það góða við að þetta hafi farið þessa leið er að þetta mun tryggja nokkrum öðrum börnum það líka,“ segir Logi.
Logi lagði á dögunum fram frumvarp um ríkisborgararétt til handa Mary og Haniye. „Tilgangur minn með frumvarpinu var auðvitað fyrst og fremst að tryggja þessum stúlkum öryggi en líka að benda á í greinargerð með skýrum hætti til hvers alþingi ætlast af stjórnvöldum og að setja pressu á að þessi mál komist á dagskrá og verði almennt í lagi - ekki bara eitt og eitt barn - heldur bara almennt. Það hefur tekist og það er áfangasigur en síðan mun það auðvitað ráðast á úrslitum kosninganna hvort að það verður meirihluti fyrir þeim mannúðarsjónarmiðum sem eru nauðsynleg til þess að hjálpa börnum í neyð,“ segir Logi að lokum.
Hér að neðan er stöðuuppfærsla Smára og Loga í heild sinni.