Hertha stal stigi á loka mínútunum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. desember 2017 18:45 Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty Hertha Berlin náði að stela stigi af Augsburg í þýsku Bundesligunni í dag. Alfreð Finnbogason var að vanda í byrjunarliði Augsburg, en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Francisco Caiuby var hins vegar á þeim skónum og skoraði eina mark Augsburg á 74. mínútu. Það leit allt út fyrir að Augsburg færi með sigur af hólmi, en Salomon Kalou jafnaði á síðustu augnablikum leiksins. Augsburg hefði farið upp í fjórða sæti deildarinnar með sigri, en situr í staðinn eftir í sjöunda sæti með 23 stig eftir 15 leiki. Hertha er í 12. sætinu með 18 stig. Þýski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti