Fimm ríki slíta stjórnmálasambandi við Katar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2017 08:28 Yfirvöld í Katar hafa brugðist ókvæða við. Vísir/EPA
Fimm ríki hafa slitið stjórnmálasambandi við Katar og sakað yfirvöld þar í landi um að styðja hryðjuverkahópa. Umrædd ríki eru Sádí Arabía, Egyptaland, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Jemen. Þannig greina Sádí arabískir fréttamiðlar frá því að yfirvöld þar í landi hafi lokað landamærum sínum við Katar. Hið sama er uppi á teningnum í hinum fjórum löndunum þar sem erindrekar Katar hefur verið gert að yfirgefa löndin hið snarasta. Þetta sé gert vegna þess að yfirvöld í Katar styðji við „ýmis hryðjuverkasamtök og hópa sem vinni gegn hagsmunum Arabíuskagans,“ en þar er átt við hópa líkt og Bræðralag múslíma, Al-Kaída, Íslamska ríkið og hópa sem studdir eru af Írönum. Þannig studdu yfirvöld í Katar til að mynda Bræðralag múslíma og egypska forsetann Mohamed Morsi árið 2014, ólíkt nágrannnalöndum sínum sínum og kölluðu yfirvöld í Sádí Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Barein sendiherra sína heim við það tilefni. Yfirvöld í Katar hafa brugðist ókvæða við og segja að aðgerðir ríkisins séu „óréttlætanlegar“ og „byggi ekki á neinum staðreyndum.“ Þau hafa þvertekið fyrir að styðja hryðjuverkahópa með nokkrum hætti. Einungis tvær vikur eru síðan að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, heimsótti Sádí Arabíu og innsiglaði varnarsamkomulag við yfirvöld þar í landi og hvatti ríki á Arabíuskaganum til þess að mynda bandalag gegn Íran.
Mest lesið Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Erlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Erlent Brotist inn í fataverslun Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Von á átján stiga hita á Hallormsstað Innlent Hundsbitum fari fjölgandi Innlent Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Sjá meira