Innlent

Átján ára stúlka lést í slysinu

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Átján ára stúlka lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi norðan við afleggjarann að Bláa lóninu á níunda tímanum í morgun. Einn er alvarlega slasaður og er á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Allt tiltækt lið lögreglunnar á Suðurnesjum var sent á slysstað í morgun og var vegurinn lokaður í um þrjár klukkustundir. Töluverð hálka er á veginum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Loftmyndir.is

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×