Tónlist

Páll Óskar frumflytur glænýtt lag og undirbýr heimsóknir í þúsund hús

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Páll Óskar keyrir stórglæsilega vínylplötu og geisladisk heim til fólks hvar sem er á landinu í fríinu sínu í haust.
Páll Óskar keyrir stórglæsilega vínylplötu og geisladisk heim til fólks hvar sem er á landinu í fríinu sínu í haust. Vísir/Eyþór
Söngvarinn og skemmtikrafturinn Páll Óskar frumflutti glænýtt lag af glænýrri plötu sinni í dag. Lagið ber heitið Líður aðeins betur og er angurvært stuðlag, eins og Palla er von og vísa.

Páll Óskar var gestur Ívars Guðmundssonar á Bylgjunni í morgun en hann ræddi þar meðal annars frumlegt fyrirkomulag á útgáfu fyrrnefndar plötu. Söngvarinn hyggst keyra með allar seldar plötur heim að dyrum til kaupenda en söngvarinn hefur nú fengið 1082 pantanir á borð til sín.

„Þetta verður bara eins og gjörningalistaverk: Páll Óskar heimsækir þúsund hús,“ sagði Páll Óskar kíminn um söluna.

Nýjasta lag Páls Óskars, Líður aðeins betur, var enn fremur frumflutt í þættinum en áhugasamir poppaðdáendur geta hlýtt á lagið í spilaranum hér að neðan á mínútu 4:28. Þá er einnig hægt að horfa á textamyndband Páls Óskars við lagið, sem leit einnig dagsins ljós í morgun.


Tengdar fréttir

Páll Óskar pantaður heim að dyrum

Páll Óskar gefur út sína nýjustu plötu þann 16. september. Hann ætlar að gefa plötuna út á vínyl og geisladisk, ásamt því að hún kemur inn á streymisveitur. Palli mun skutla plötunni til aðdáenda. sem forpanta plötuna, hvert á land sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.