Lífið

Það er hollt að gráta

Aron Már Ólafsson og Orri Gunnlaugsson, ásamt Hildi Skúladóttur, standa á bak við Allir gráta.
Aron Már Ólafsson og Orri Gunnlaugsson, ásamt Hildi Skúladóttur, standa á bak við Allir gráta. Vísir/Eyþór
Aron Már Ólafsson, Orri Gunnlaugsson og Hildur Skúladóttir eru fólkið á bak við samtökin Allir gráta. Nýlega var opnað fyrir umsóknir í styrktarsjóð samtakanna sem þau hafa komið á laggirnar.

„Allir gráta eru félagasamtök sem vinna að því að opna umræðuna um þunglyndi og kvíða á meðal barna og unglinga á Íslandi,“ segir Orri Gunnlaugsson, verkefnastjóri samtakanna, en hann, Aron Már Ólafsson og Hildur Skúladóttir stofnuðu sam­tök­in í desember.

Hugmyndina að samtökunum átti Aron Már Ólafsson leik­listar­nemi, betur þekktur sem Aronmola, en hann er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna landsins.

„Aronmola er með yfir 30 þúsund fylgj­end­ur á Snapchat og hann langaði til þess að nýta samfélagsmiðlana í eitthvað uppbyggilegt. En það var ein­mitt í gegn­um Snapchat sem hann fann þörf­ina fyr­ir verk­efnið All­ir gráta,“ segir Orri.

Aron vakti töluverða athygli þegar hann fór til Los Angeles í nóvember í fyrra þar sem hann var staddur til að taka upp efni ásamt því að spóka sig um með stærstu samfélagsmiðlastjörnum heims. Á þessum tíma opnaði Aron sig um persónulega reynslu af þunglyndi og talaði opinskátt um reynslu sína í beinni útsendingu á Face­book-síðu sinni.

„Þetta fór allt af stað eftir það. Við höfum verið að vinna í því að safna í styrktarsjóð, sem við komum til með að úthluta úr í byrjun júní,“ segir Orri og bætir við að hver sem hafi hugmynd að verkefni til að efla geðheilsu barna og unglinga á Íslandi geti sótt um í sjóðinn.





Allir gráta eru félagssamtök sem vinna að því að opna umræðuna um þunglyndi og kvíða á meðal barna og unglinga.
Frá áramótum hefur Aron farið í grunn- og framhaldsskóla þar sem hann hefur kynnt málefni samtakanna ásamt því að tala við krakkana um reynslu sína.

„Þar sem ég byrjaði á því að opna mig á Snapchat um mína eigin reynslu langaði mig bara að fara í skólana og tala beint við krakkana,“ segir Aron Már.

Umsóknarferlið er opið til 1. júní á allirgrata.is/styrktarumsokn. Nú þegar hafa borist yfir 50 hugmyndir.

„Við erum öll alveg gífurlega þakklát fyrir viðbrögðin sem við höfum fengið, það var opnað fyrir umsóknir í síðustu viku, svo þetta fer vel af stað, við viljum hvetja alla til að koma sinni hugmynd á framfæri, sama hver hún er,“ segir Orri, þakklátur.

Hægt er að styrka málefnið með því að leggja inn á reikning samtakanna.

„Reikningsnúmerið er 528-14-404866 og kennitalan 561216-0530. Svo erum við í því að finna upp á skemmtilegum verkefnum til að efla sjóðinn áður en úthlutað verður úr honum í júní. Við byrjuðum með SMS-leik og núna erum við með í símasölu fallega nælu sem hönnuð var af Rakel Tómasdóttur og Gabríel Bachmann en hún verður einnig fáanleg í verslunum fljótlega,“ segir Orri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.