Bíó og sjónvarp

Dyrnar að undirheimunum opnast aftur þegar Stranger Things snýr aftur í haust

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Hér má sjá aðalleikara þátanna. Stranger Things fjalla um fjóra vini sem kynnast sérstakri og dularfullri stúlku. Þau lenda saman í yfirskilvitlegum ævintýrum í fyrstu þáttaröðinni. Hvað ætli gerist næst?
Hér má sjá aðalleikara þátanna. Stranger Things fjalla um fjóra vini sem kynnast sérstakri og dularfullri stúlku. Þau lenda saman í yfirskilvitlegum ævintýrum í fyrstu þáttaröðinni. Hvað ætli gerist næst? Visir/AFP
Spennuþáttaserían vinsæla Stranger Things mun snúa aftur þann 27. október aðdáendum til mikillar gleði. Netflix framleiðir þættina að vanda og gáfu út þessa yfirlýsingu í dag og lofar spennandi framhaldi.

Atburðarrásinni hefur verið haldið ansi leyndri en víst er að bærinn Hawkins er alls ekki laus við afskipti dularfullra og hættulegra vera sem koma að handan, eða frá „hinni hliðinni“, eins og hún er kölluð í þáttunum. Búast má fastlega við því að þessi þáttaröð verði jafn vinsæl og sú fyrri, sem var ein frægasta og vinsælasta þáttaröð Netflix, sem gerð hefur verið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.