Innlent

Náðu bílnúmeri þjófsins

Gissur Sigurðsson skrifar
Afgreiðslufólkinu tókst að ná skrásetninganúmeri bílsins og hafði lögregla uppi á þjófnum í framhaldinu.
Afgreiðslufólkinu tókst að ná skrásetninganúmeri bílsins og hafði lögregla uppi á þjófnum í framhaldinu. Vísir/Eyþór
Ölvaður maður stal vörum úr sólarhringsverslun í Garðabæ upp úr klukkan eitt í nótt og hélt á brott með þýfið á bíl sínum.

Afgreiðslufólkið náði skrásetningarnúmeri bílsins og hringdi á lögreglu, sem hafði nokkru síðar uppi á bílnum og handtók manninn, bæði fyrir þjófnað og ölvunarakstur. Hann er vistaður í fangageymslu.

Annar er vistaður á sama stað eftir að hann var handtekinn í miðborginni fyrir ölvun og óspektir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×