Tónlist

Súpergrúppan Tálsýn með sína fyrstu plötu

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Sveitin kom fram á Airwaves í fyrra og þótti standa sig prýðilega enda skipuð vönum mönnum.
Sveitin kom fram á Airwaves í fyrra og þótti standa sig prýðilega enda skipuð vönum mönnum.
Hljómsveitin Tálsýn hefur gefið út sína fyrstu plötu, stuttskífu sem ber einfaldlega nafnið ep1. Á henni má finna fyrstu fjögur lögin sem sveitin samdi. Þessi fyrsta útgáfa sú fyrsta af væntanlegri trílógíu þar sem hljómsveitarmeðlimir ætla sér að skrásetja þroskaferli eigin sveitar með þremur fjögurra laga stuttskífum

„Það er áhugavert að pæla í þessu. Stundum tekur það hljómsveit einhvern tíma að finna „sitt sánd.“ Við erum meðvitaðir um það. Ætluðum til dæmis að vera sækadelísk seventís sveit, en eftir fyrstu æfinguna ákváðum við að vera ekkert of mikið að pæla í hvað við værum að gera, heldur að leyfa bara sköpunargleðinni og flæðinu að njóta sín og sjá hvað gerist,“ segir Oddur Ingi, einn meðlimur sveitarinnar. Tálsýnarmenn hafa allir gert garðinn frægan i öðrum sveitum áður - til að mynda Lokbrá, Jan Mayen, Quest og fleiri, svo að það er ekkert vitlaust að kalla Tálsýn súpergrúppu.

Næstu fjögur lögin eru tilbúin og stefnan að taka þau upp sem fyrst.

„Það á helst ekkert að ritskoða mikið. Við ætlum að vera heiðarlegir. Stefnan var alltaf að taka upp og henda á netið um leið og eitthvað væri tilbúið. Við fylgjum þeirri stefnu, en með breyttum formerkjum, þessari trílógíupælingu. Hver elskar ekki góða trílógíu? Ep 2 er væntanleg og lögin sem verða á ep 3 eru farin að myndast. Þetta er mjög spennandi.“

Hlusta má á fyrstu stuttskífu Tálsýnar hérna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.