Rannsóknarögreglumaður fær tvær milljónir vegna tilfærslu frá Sérstökum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 20. mars 2017 06:30 Lögreglumaðurinn sætti sig ekki við launalækkunina sem fylgdi tilfærslunni. Lögreglumaðurinn á myndinni er ekki sá sem um ræðir í fréttinni. vísir/hari
Íslenska ríkið þarf að greiða lögreglumanni rúmar tvær milljónir króna, og milljón betur í málskostnað, vegna vangoldinna launa. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok síðasta mánaðar en birtur síðasta föstudag. Lögreglumaðurinn starfaði hjá embætti Sérstaks saksóknara en var færður í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 1. nóvember 2014. Við það lækkaði hann í launum – hjá Sérstökum hafði maðurinn ríflega 700 þúsund krónur í laun en hjá LRH voru laun hans allt að 200 þúsund krónum lægri. Þegar lögreglumanninum var tilkynnt að færa ætti hann til LRH samþykkti hann það með fyrirvara um að hann myndi krefja Sérstakan saksóknara um greiðslu fullra launa þar til þrír mánuðir væru liðnir frá því að embættið væri lagt niður. Lögreglumaðurinn taldi að hann hafi ekki verið leystur frá störfum hjá Sérstökum saksóknara heldur færður til í starfi. Hann fór því fram á að sér yrði greiddur launamismunur frá nóvember 2014 til mars 2016 en þá voru liðnir þrír mánuðir frá því að embætti Sérstaks saksóknara var lagt niður. Í starfsmannalögum er kveðið á um að sé embættismaður fluttur í annað, lægra launað embætti, skuli greiða honum launamismun fyrir þann tíma sem eftir er af skipunartíma hans í fyrra embætti. Dómari féllst á röksemdir lögreglumannsins um að hann hefði verið fluttur til í embætti en ekki leystur frá störfum. Því var ríkið bótaskylt. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Erlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Fleiri fréttir Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Fundi frestað til morgundags: „Það kostar að vera með fólk í vinnu“ Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið „Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Heimila íshellaferðir á ný Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Eyvindur settur landsréttardómari Nýtt björgunarskip komið til landsins Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Fundur sem ræður úrslitum hafinn Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Mjúkt vald Íslands út um allan heim Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Tekist á um menntamál og brúarsmíði Auður mjög tímabundið settur forstjóri Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Hvernig þingmenn yrðu Arnar Þór, Jón Gnarr og Þórður Snær? Helga Mogensen látin Sjá meira