Útskriftarnemar í hjúkrunarfræði við HA ráða sig ekki á Landspítalann Anton Egilsson skrifar 8. apríl 2017 14:22 Útskriftarnemar í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri ætla ekki að starfa á Landsspítalnum að loknu námi í vor. Fréttablaðið/Vilhelm
Útskriftarnemar í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri ætla ekki að ráða sig til starfa á Landspítalanum að lokinni brautskráningu í vor miðað við þau launakjör sem þar standa til boða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hjúkrunarnemar við Háskólann á Akureyri sendu frá sér í dag. Í yfirlýsingunni lýsa hjúkrunarfræðinemari við Háskólann á Akureyri jafnframt yfir fullum stuðningi við 4. árs hjúkrunarfræðinema við Háskóla Íslands í baráttunni um bætt launakjör. Í febrúar síðastliðnum sendu hjúkrunarfræðinemar við Háskóla Íslands frá sér yfirlýsingu þess efnis í febrúar að þeir hyggðust ekki ráða sig til starfa á Landspítalanum að loknu námi í vor. „Við förum fram á að menntun okkar og vinnuframlag verði metið að verðleikum og gerum því sömu kröfu og verðandi kollegar okkar um bætt launakjör.” Byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga án vaktaálags og yfirvinnu eru rúmar 380 þúsund krónur á mánuði. Í yfirlýsingunni segir að launin séu ekki í samræmi við menntun, ábyrgð og vinnuálag hjúkrunarfræðinga. „Við teljum að launakjör hjúkrunarfræðinga séu almennt of lág og í engu samræmi við bæði menntun, ábyrgð og vinnuálag. Algeng byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum og víðar eru í kringum 380 þúsund fyrir 100% starfshlutfall. Í vaktavinnu ætti 80% starfshlutfall almennt að jafngilda 100% vinnu vegna síbreytilegs vinnutíma og vinnuálags. Þannig er vaktavinna metin í nágrannalöndum okkar." Ekki verði bætt úr skorti á hjúkrunarfræðingum með þeim kjörum sem bjóðast í dag. „Skortur á hjúkrunarfræðingum á Íslandi verður ekki bættur með núverandi launakjörum og vinnuumhverfi. Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar hafa nú þegar leitað í önnur og betur launuð störf,” segir að lokum.
Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Sjá meira