ESB sektar Google um 283 milljarða króna Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2017 10:02 Google hefur níutíu daga til að breyta starfsháttum sínum. Vísir/AFP
Evrópusambandið hefur sektað tölvurisann Google um 2,4 milljarða evra, um 283 milljarða króna, vegna brota á samkepnislögum. Að dómi framkvæmdastjórnar ESB hefur tölvurisinn veitt eigin netverslun forgang umfram aðrar í leitarvél sinni. Framkvæmdastjórn ESB hefur aldrei í sögunni sektað fyrirtæki um eins háa upphæð, en rannsókn ESB hófst fyrir sjö árum síðan. Sambandið hefur jafnframt gert Google að breyta um starfshætti innan níutíu daga. Bregðist Google ekki við er hætta á að sektin verði enn hærri. Þó að sektin sé sú hæsta í sögunni þá er hún langt frá þeirri hámarkssektarupphæð sem regluverk ESB kveður á um. Hámarkssektin sem ESB getur lagt á fyrirtæki er átta milljarðar evra, sem myndi samsvara tíu prósentum af heildartekjum Google.Uppfært 10:14: Í yfirlýsingu frá Google kemur fram að tölvurisinn íhugi nú að áfrýja málinu.
Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Fleiri fréttir Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira