Skoðun

22 milljónir á dag …

Katrín Atladóttir skrifar
Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavík felldi nýlega tillögu mína um lægri skatta á atvinnuhúsnæði. Skattar og gjöld borgarinnar eru flest í lögbundnu hámarki. Samt hækkuðu skuldir á síðasta kjörtímabili um 36 milljarða eða tæp 60%. Nýr meirihluti siglir áhyggjulaus sömu leið, því skuldir borgarsjóðs hafa vaxið um 650 milljónir á mánuði frá áramótum, eða um rúmar 22 milljónir á hverjum einasta degi það sem af er ári. Þrátt fyrir mikla árlega tekjuaukningu aukast útgjöldin enn hraðar og þeir sjá sem vilja, að rekstur borgarinnar er ekki sjálfbær.

Hinir fjölmörgu og stóru tekjustofnar duga samt ekki borginni. Í stað þess að lækka gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur og rýmka þar með fjárráð borgarbúa er áætlað að borgin greiði sér 14 milljarða króna í arð á næstu fjórum árum. Gjaldskrárhækkanir fyrri ára eru með óbeinum hætti orðnar tekjustofn borgarinnar. Eru þá ótaldir íþyngjandi eignaskattar sem hækka leiguverð og minnka áhuga fyrirtækja og fólks á að búa og starfa í borginni. Hækkun eignaverðs skilar sér því miður ekki sjálfkrafa í veski borgarbúa í lok mánaðar.

Nálgun Reykjavíkurborgar ætti að vera að skilgreina lögbundin verkefni sín, kostnaðargreina þau og afla síðan þeirra tekna sem til þarf. Meirihlutinn í borginni snýr þessu alveg á haus. Spáð er hversu mikið skattgreiðslur borgarbúa og fyrirtækja aukast og hversu mikið má auka skuldir. Þeim fjármunum er síðan ráðstafað í verkefni sem sátt ríkir um en ekki síður hin, sem alls engin sátt ríkir um. Nokkur þeirra hafa verið í umræðunni síðustu vikur en skyldu þau vera fleiri?

Nauðsynlegt er að tryggja að umsvif borgarinnar fari ekki úr böndunum. Fylgjast þarf með að grunnþjónustu sé sinnt vel en fjármunum ekki ráðstafað óvarlega. Þannig mætti sleppa ýmsum fasteignaverkefnum og spara umtalsverða fjármuni. Við höfum upplifað góðæri síðustu ár. En þessi ósjálfbæra útgjalda- og skuldaaukning kemur í bakið á borgarbúum þegar hægir á hagkerfinu.

Skattheimtu verður að stilla í hóf svo fólk haldi eftir þeim fjármunum sem ekki er brýn þörf á í samneysluna. Nú þegar hillir undir samdrátt í hagkerfinu eru skattalækkanir besta kjarabótin, því fáir fara betur með skattfé en greiðendur þess.



Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×