Lífið

Jack Black vitnaði í Axl Rose og drullaði yfir Donald Trump

Benedikt Bóas skrifar
Black kallaði Trump rasshaus en þess má geta að hans stjarna var eyðilögð fyrr á árinu. 
Nordic­Photos/getty
Black kallaði Trump rasshaus en þess má geta að hans stjarna var eyðilögð fyrr á árinu. Nordic­Photos/getty Vísir/getty
Gamanleikarinn Jack Black fékk sína eigin stjörnu í Hollywood í vikunni. Black fannst ekkert sérstaklega leiðinlegt að allir væru komnir til að heiðra hann og var í banastuði. Hann hélt nokkuð tilfinningaþrungna ræðu þar sem hann fór yfir ferilinn. Í lokin þakkaði hann kærlega fyrir sig og þakkaði fjölskyldu og vinum áður en hann gerði örlítið hlé. Þá hlóð hann í: „Ég elska ykkur öll. Nema Donald Trump. Hann er rasshaus,“ og gekk burt.

Stjarna Blacks er númer 2.645 á hinni svokölluðu Walk of Fame gangbraut um Hollywood. Þar má finna allar helstu stjörnur kvikmyndanna í gegnum árin. „Mig hefur langað í svona stjörnu frá því ég var lítill gutti. Þegar ég var lítill hugsaði ég að ef ég fengi svona væri ég búinn að slá í gegn. Og svo ég vitni til ódauðlegra orða Axl Rose: Where do we go now?“ spurði Black í ræðu sinni.

Þar vitnaði hann í lag Guns N' Roses, Sweet Child of mine, sem varð þeirra fyrsta lag til að náð toppsæti Billboard-listans.




Tengdar fréttir

Jack Black slær í gegn með geggjuðu myndbandi

Grínleikarinn Jack Black hefur alltaf verið mjög skrautlegur karakter. Black vakti athygli í vikunni á Reddit þegar hann deildi myndbandi inni á YouTube-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.