Fyrir viðskiptin átti Vogun hf. 33,5 prósenta hlut og Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. 0,5 prósent. Bæði félögin eru í eigu Hvals hf. en stærstu hluthafar þess félags eru Kristján Loftsson og fjölskylda. Alls eru þetta 619.721.067 hlutir sem félögin seldu í HB Granda á genginu 35. Kaupendur eru sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. og félagið Fiskitangi sem er í eigu Guðmundar Kristjánssonar forstjóra Brims hf.
Kaupverð, 35 krónur á hlut, er nokkuð yfir markaðsverði HB Granda en hlutabréf þess stóðu í 30,2 krónur á hlut á aðallista Kauphallar Íslands eftir lokun markaða í gær.
![](https://www.visir.is/i/5DC3B3388E0E6BB58627FD23F9B2030717BFF0A42B2EBE6CB6C6E182218BBA2F_713x0.jpg)
Með viðskiptunum eru Kristján Loftsson og fjölskylda að selja nær allan hlut sinn í HB Granda en eftir viðskiptin eiga félög tengd Kristjáni 249.000 hluti.
Stór hlutur í Hval hf. finnst ekki
Í mars síðastliðnum birtist í Lögbirtingarblaðinu innköllun frá hluthöfum Hvals hf. þar sem farið er þess á leit við stjórn félagsins að samtals 20 prósent af hlutabréfum í félaginu verði felld úr gildi þar sem þau hafi glatast og að ný bréf verði gefin út í staðinn. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu. Um er að ræða 59 hlutabréf sem samtals mynda um 41,4 milljónir hlutafjár að nafnvirði. Það samsvarar um 3,3 milljörðum króna af eigin fé Hvals hf.
Handhafar hlutabréfanna eru í innkölluninni beðnir um að gefa sig fram við stjórn Hvals innan þriggja mánaða og lýsa yfir rétti sínum yfir bréfunum. Ef enginn gefur sig fram áður en fresturinn er liðinn falla niður öll réttindi á hendur félaginu samkvæmt týndu hlutabréfunum og verða þá í staðinn gefin út ný hlutabréf í Hval hf. handa hinum skráðu eigendum.