Lífið

Jón Arnar og Hrefna Dís úr leik í Allir geta dansað

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá þætti kvöldsins.
Frá þætti kvöldsins. Vísir/Atli Björgvinsson
Dansparið Jón Arnar Magnússon og Hrefna Dís Halldórsdóttir eru úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað.

Þau Jón Arnar og Hrefna Dís dönsuðu enskan vals við lagið Open Arms með Journey í þætti kvöldsins en það dugði ekki til að fleyta þeim áfram í keppninni. Í síðasta þætti voru þau Sölvi Tryggvason og og Ástrós Traustadóttir send heim.

Tvö danspör voru stigahæst í kvöld en bæði Javi og Ebba og Jóhanna Guðrún og Max fengu 26 stig. Þau fyrrnefndu dönsuðu samba við lagið Me gente með J Baldvin og Willy William en þau síðarnefndu tóku quickstep við lagiðThat man með Caro Emerald.

Í þáttunum Allir geta dansað keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir dansa við tíu fagdansara og stendur eitt par uppi sem sigurvegari.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.