Eitthvað skrítið virðist vera á seyði hjá samskiptaforritinu Facebook en í kvöld barst fréttastofu ábendingar frá furðu lostnum notendum. Eldri spjallþræðir skjóta upp kollinum í hrönnum eins og þeir séu nýir.
Þeir sem hafa lent í skringilegheitunum lýsa því hvernig ótal spjallgluggar, um 30-40 talsins, birtast skyndilega eins og Facebook-vinir þeirra hafi sent ný skilaboð til viðtakanda en það skrítna er að engin ný skilaboð eru að finna í spjallgluggunum.
„Þetta færist bara í aukana,“ sagði einn Facebook-notandi í samtali við fréttastofu.
Vísir hefur ekki fengið neinar upplýsingar um slík „spjallþráðaflóð“ í snjallsímum.
Ekki er hægt að slá því föstu að um netóværu sé að ræða því undanfarið hefur ýmislegt skrítið gerst á Facebook. Samskiptamiðillinn hrundi um daginn auk þess sem tilkynningar hafa ekki borist sem skyldi hjá öllum notendum.
Gamlir spjallþræðir hrella Facebook-notendur

Tengdar fréttir

Facebook stríðir notendum
Notendur Facebook um víða veröld hafa kvartað undan hægagangi á samfélagsmiðlinum eftir hádegi í dag

Sjáðu hve mikið þú notar Facebook
Margir kannast við að vera fullmikið á netinu. Til dæmis er hægt að verja óhemjutíma á Facebook og týna sér þannig.