Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fjallað var um mál Júlíusar í Panama-skjölunum svokölluðu.
Brot Júlíusar fólst í því að hafa árin 2010 til 2014 geymt á bankareikningi sínum hjá UBS-banka á Ermarsundseyjunni Jersey andvirði 131 til 146 milljóna króna en um var að ræða tekjur sem komu til vegna viðskipta bílaumboðsins Ingvars Helgasonar á árunum 1982 til 1993 sem voru ekki taldar fram til skatts.
Árið 2014 ráðstafaði Júlíus þessum fjármunum af fyrrnefndum bankareikningi og inn á reikning hjá bankanum Julius Bär í Sviss, sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation. Rétthafar hans voru skráðir ákærði, eiginkona hans og börn. Fjárhæð hins ólögmæta ávinnings, sem ákærði þvætti með þessum hætti, var á bilinu 49 til 57 milljónir króna.
Ágóði Júlíusar af brotinu er hins vegar ekki gerður upptækur eins og tíðkast í peningaþvættismálum, en hvorki var gerð krafa um kyrrsetningu fjármunanna meðan rannsókn stóð yfir, né upptöku þeirra með dómi.
Fyrir tæpum mánuði féll einnig dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna peningaþvættis en fjárhæðin sem þar var um að ræða var um það bil fimmfalt lægri en í tilviki Júlíusar eða rúmar átta milljónir. Fékk dómfelldi í því máli, Hafþór Logi Hlynsson, 12 mánaða óskilorðsbundinn dóm fyrir brotið auk þess sem ágóði brotsins var gerður upptækur; rúmlega tvær og hálf milljón í peningum ásamt vöxtum og verðbótum og Tesla-bifreið af 2014 árgerð.
Sami saksóknari sótti þessi mál og sami dómari við héraðsdóm dæmdi. Á það ber þó að líta að Hafþór á langan sakaferil að baki og rauf skilorð með broti sínu. Að frátalinni upptöku ágóðans skýrir sakaferill og skilorðsrof Hafþórs muninn á þyngd refsingarinnar í þessum málum en dómurinn yfir Hafþóri er bæði tveimur mánuðum lengri og óskilorðsbundinn.