Tom Bossert, þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði upp í gær. Bossert er alls ekki fyrsti starfsmaður Hvíta hússins sem hættir á kjörtímabilinu.
Samkvæmt NBC hafði Bossert ekki hugmynd um að afsagnar hans yrði óskað og hafði ekki hugsað um að hætta.
„Tom leiddi vinnu Hvíta hússins við það að skýla landinu fyrir hryðjuverkaógninni og tölvuárásum sem og viðbrögð við fordæmalausri röð náttúruhamfara,“ sagði Sarah Sanders, fjölmiðlafulltrúi embættisins.
Á því rúma ári sem Trump hefur búið í Hvíta húsinu hefur starfsmannaveltan verið lygileg. Fjöldi aðstoðarmanna og ráðherra sem hefur sagt upp eða verið sagt upp hleypur á tugum.
Enn einn hættur hjá Trump

Tengdar fréttir

Þjóðaröryggisráðgjafi Trump hættir, harðlínumaður inn í staðinn
Eftirmaður H.R. McMaster var yfir vopnaeftirlitsmálum þegar Bandaríkin sökuðu Írak um að búa yfir gereyðingarvopnum. Hann vill hefja stríð við Norður-Kóreu og Íran að fyrra bragði.

Læknir Trump tekur við ráðherrastöðu
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, rak í dag enn einn ráðherra úr ríkisstjórn sinni.

Fox-liðum fjölgar í Hvíta húsinu
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur að undanförnu ráðið fjölda fólks í Hvíta húsið sem hann hefur séð á Fox News, uppáhald sjónvarpsstöð hans, þar sem stefnumál hans og aðgerðir eru iðulega hyllt.