Lífið

Keith Richards arftaki Magga Kjartans sem gleðifélagi Jóns Ólafs

Jakob Bjarnar skrifar
Þeir feðgar Davíð og Magnús Kjartansson með Jóni Ólafssyni í Dublin. Keith er arftaki Magga sem hans sérlegi gleðifélagi.
Þeir feðgar Davíð og Magnús Kjartansson með Jóni Ólafssyni í Dublin. Keith er arftaki Magga sem hans sérlegi gleðifélagi.
„Þegar ég hætti öllu þá missti Jón gleðifélaga. Þá hófst leit að einhverjum sem gæti reynst arftaki. Og úr hópi umsækjenda varð Keith Richards fyrir valinu sem einhver sem gæti sýnt sig í að  vera í það minnsta skuggamynd af því sem var. Einhver sem er líklegur til að geta þraukað fram undir morgunsárið,“ segir Magnús Kjartansson tónlistarmaður.

Jón Ólafsson innsti koppur í herbúðum Stónsarana

Rokkfeðgarnir Davíð og Magnús Kjartansson fóru í fylgd með Jóns Ólafssonar athafnamanns á tónleika Rolling Stones í Dublin um síðustu helgi og voru þar á VIP-passa. Að sögn Davíðs var þetta mikil upplifun. Þeir voru að þvælast þarna baksviðs með nánustu aðstandendum, svo sem eiginkonu Richards, Patti Hansen og dætrunum Theodora Dupree og Alexandra Nicole. Og sáu svo Stones á fremsta bekk. „Alveg fyrir framan sviðið, sviðið var ekki hátt. Bara eins og á tónleikum í Bæjarbíó. Klikkað. Þeir voru fallega sloppí,“ segir Davíð.

Stones voru skemmtilega sloppí á tónleikunum í Dublin, að sögn Davíðs Magnússonar gítarleikara sem var á fremsta bekk á tónleikunum.getty
En, það kom sem sagt á daginn að Jón, sem var á árum áður langumfangsmesti tónlistarútgefandi á Íslandi og þá kenndur við Skífuna, var innsti koppur í búri í herbúðum Rolling Stones. Magnús kann nánari skýringar á því.

Magnús ánægður með arftaka sinn

„Sko, hluturinn er þessi. Jón er náttúrlega með vatnið sitt þarna, sponser að túrnum,“ útskýrir Magnús. En Vísir greindi nýverið frá þeim samningum öllum.

„Já, og er að flækjast með þeim. Hann er mjög góður vinur umsjónarkonu Keith Richards. Sem er fyrrverandi umsjónarkona Mick Jagger, sú sem Mick sigaði á Keith þegar Keith var í andaslitrum… en, þetta eru reyndar hugtök sem maður er hættur að tengja sama: Keith Richards og andaslitur. Maður hefur verið að bíða eftir dánartilkynningunni í 40 ár. Búist við slíku nánast daglega,“ segir Magnús og vísar til þess að Keith Richards er líkast til þekktastur ólifnaðarmanna rokksögunnar allrar.

Og nú eru þeir orðnir „læk ðiss“ Jón og Keith?

„Já, ég er bara ánægður með að hann skyldi hafa fundið einhvern í staðinn fyrir mig,“ segir Magnús og ljóst að honum þykir þarna hafa vel til tekist; verðugur arftaki.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.