Ekkert félag borgar meira fyrir Spánverja en Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2018 16:00 Kepa Arrizabalaga. Mynd/Twitter/Chelsea FC
Chelsea gerði í gær Kepa Arrizabalaga að dýrasta markverði heims þegar enska úrvalsdeildarféalgið keypti þennan 23 ára markvörð frá Baskafélaginu Athletic Bilbao. Chelsea kaupir markvörðinn á 72 milljónir punda eða rétt tæpa tíu milljarða íslenskra króna. Chelsea sló tvö önnur met með þessum kaupum því Kepa Arrizabalaga varð um leið dýrasti leikmaður Chelsea frá upphafi og dýrasti Spánverjinn frá upphafi. Það er athyglisvert að skoða bæði dýrustu leikmenn í sögu Chelsea og dýrustu spænsku fótboltamenn sögunnar. Ekkert félag borgar nefnilega meira fyrir Spánverja en einmitt Chelsea.The three most expensive Spanish players ever have been signed by Chelsea: Kepa Arrizabalaga (£72m) Álvaro Morata (£60m) Fernando Torres (£50m) Los Azules break a world record in the process. pic.twitter.com/OwG9slU5rB — Squawka Football (@Squawka) August 8, 2018 Þrír dýrustu Spánverjar í sögunni eru allt leikmenn sem Chelsea keypti. Chelsea borgaði eins og áður sagði 72 milljónir punda fyrir Kepa Arrizabalaga en hafði áður borgað Real Madrid 59,4 milljónir punda fyrir Álvaro Morata og Liverpool 52,65 milljónir punda fyrir Fernando Torres. Fjórði dýrasti leikmaður Chelsea í sögunni er síðan Brasilíumaðurinn Jorginho sem félagið keypti frá Napoli í sumar fyrir 51,3 milljónir punda. Sá fimmti dýrasti er Andriy Shevchenko sem Chelsea borgaði AC Milan 39,97 milljónir punda fyrir á sínum tíma. Eiður Smári Guðjohnsen var einn dýrasti leikmaður í sögu Chelsea á sínum tíma þegar félagið keypti hann frá Bolton sumarið 2000 fyrir 6,75 milljónir punda. Eiður Smári er núna kominn niður í 87. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira