Lífið

Glimmerherbergið: „Ég er bara í sjokki“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf mikið að gerast í Glimmerherberginu á sunnudagskvöldum. Jóhanna og Max fengu þrjár tíur.
Alltaf mikið að gerast í Glimmerherberginu á sunnudagskvöldum. Jóhanna og Max fengu þrjár tíur.
Dansparið Hugrún Halldórsdóttir og Daði Freyr Guðjónsson voru send heim úr þættinum Allir geta dansað í gærkvöldi.

Parið dansaði cha-cha-cha við lagið American Boy og hlutu 22 stig frá dómnefnd og voru jöfn Hönnu Rún og Bergþóri að stigum, en þau Jóhanna Guðrún og Max Petrov voru stigahæst með 30 stig frá dómnefnd fyrir tangó við lagið The Greatest Show úr myndinni The Greatest Showman.

Fjögur pör fóru áfram í úrslitaþáttinn sem verður sýndur á Stöð 2 næsta sunnudag, en það eru þau Ebba og Javi, Bergþór og Hanna Rún, Arnar Grant og Lilja og stigahæsta parið Jóhanna Guðrún og Max sem munu keppa um glimmerbikarinn.

Þættirnir eru ávallt í beinni útsendingu og þegar pörin hafa stígið á svið mæta þau í svokallað Glimmerherbergi baksviðs. Þar fara þau í viðtal sem sjá má á Instagram-síðu Stöðvar 2. Hér að neðan má sjá fjörið úr Glimmerherberginu frá því í gærkvöldi.

 
 

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on Apr 29, 2018 at 12:40pm PDT

 
 

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on Apr 29, 2018 at 12:50pm PDT

 
 

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on Apr 29, 2018 at 12:58pm PDT

 
 

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on Apr 29, 2018 at 1:11pm PDT

 
 

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on Apr 29, 2018 at 1:20pm PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.