Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme verður haldin á Akureyri um helgina. Hátíðin er haldin Hlíðarfjalli og í miðbæ Akureyrar, nánar tiltekið í Gilinu, Sjallanum og Græna Hattinum.
Hápunktur AK Extreme verður Eimskips gámastökkið í Gilinu á laugardagskvöldið kl. 21:00 en þar koma saman færustu snjóbrettamenn Íslands ásamt erlendum keppendum þar sem þeir keppa um AK Extreme titilinn og hringinn.
Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi.
Snjóbrettafyrirtækið LOBSTER, sem er í eigu bræðranna Halldórs Helgasonar og Eiríks Helgasonar hefur verið áberandi í snjóbrettaheiminum síðan þeir settu það á laggirnar árið 2011.
Það er vaninn í snjóbrettaheiminum að flest merki eiga sitt teymi sem sér um að renna sér og koma fram fyrir hönd merksins. Það eru því stórtíðindi fyrir íslensku jaðarsportmenninguna á íslandi að LOBSTER teymið ætlar að mæta í heild sinni á AK Extreme að keppa um titilinn í Eimskips Gámastökkinu í ár. Halldór og Eiríkur mæta því með gengið með sér.
Hér má sjá LOBSTER teymið í heild sinni.
Lífið