Innlent

Segja fátt um framboðsáform

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Margrét Friðriksdóttir er í framboðshug.
Margrét Friðriksdóttir er í framboðshug. Stöð 2
Margrét Friðriksdóttir, margmiðlunarhönnuður og einn stjórnenda Facebook-síðunnar Stjórnmálaspjallið, kannar þessa dagana möguleika á nýju framboði til borgarstjórnarkosninganna í vor.

„Ég ætla ekkert að upplýsa neitt strax en það er nýtt framboð í kortunum. Ég er í viðræðum við nokkra og þetta kemur allt í ljós á næstu tveimur vikum eða svo,“ segir Margrét sem í fyrrakvöld auglýsti á Stjórnmálaspjallinu eftir „fólki með brennandi áhuga á pólitík og sem vill bjóða sig fram fyrir komandi kosningar í vor.“

Þegar Margrét er spurð hvort Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, óháður borgarfulltrúi, sé með henni í þessum þreifingum svarar hún:

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.Vísir/valgarður
 „Ég gef ekkert upp eins og staðan er núna.“ Sveinbjörg Birna, sem hefur verið utan flokka síðan hún sagði skilið við Framsóknarflokkinn, hefur látið þau boð út ganga að hún sé ekki að hætta í borgarpólitíkinni.

Hún er hins vegar ekki síður leyndardómsfull en Margrét þegar hún er spurð hvað hún hyggist fyrir.

„Það eru svo margir flokkar sem vilja vinna með mér en ég svo vandlát eftir að hafa farið svona illa út úr þessu Framsóknarævintýri. Ég er að skoða þetta og á von á að línur verði orðnar skýrari um mánaðamótin.“

Sveinbjörg segir líklegt að ekki færri en sjö til átta flokkar verði í framboði í vor. Gerjunin sé slík.

„Þetta sýnir hversu fólk er orðið óánægt og kannski ekki síst óánægt með frammistöðu þeirra flokka sem hafa verið mest áberandi í borginni, Sjálfstæðisflokk og Samfylkinguna þar sem skörunin er mest. Í þessari óánægju skapast svigrúm fyrir aðra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×