Lífið

Kate Upton sakar stofnanda Guess um kynferðislega áreitni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kate Upton tekur þátt í MeToo byltingunni sem hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðan í október á síðasta ári.
Kate Upton tekur þátt í MeToo byltingunni sem hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðan í október á síðasta ári. Mynd/getty
Fyrirsætan Kate Upton birti færslur á Twitter og Instagram á fimmtudag undir millumerkinu #MeToo. Þar sagðist hún vonsvikin með að svo þekkt kvennamerki eins og Guess sé enn að valdefla Paul Marciano sem listrænan stjórnanda. Marciano er einn stofnanda Guess og kynnti nýja línu á fimmtudaginn ásamt Jennifer Lopez.

Á Instagram skrifaði fyrirsætan:

„Hann ætti ekki að fá að nota völd sín í þessum bransa til þess að áreita konur andlega og kynferðislega.“

Marciano þvertók fyrir þessar ásakanir í samtali við TMZ og sagði að ef hún væri með einhverjar ásakanir ætti hún að gera það hjá lögreglu eða fyrir dómstólum. Hann segir að Guess hafi hætt samstarfinu við fyrirsætuna af því að þegar herferðir merkisins hefðu gert hana fræga, hafi hún byrjað að mæta á tökustað lítandi „hræðilega“ út. Telur hann að það sé ástæða þessa ásakana.

Paul Marciano, einn stofnanda Guess.Vísir/Getty
Jennifer Lopez sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir að afstaða sín í svona málum sé mjög augljós. 

„Ég samþykki ekki kynferðislega áreitni, brot eða misferli. Allar ásakanir ættu að vera rannsakaðar að fullu. Ég held áfram að styðja rétt okkar sem konur.“

Síðan Upton steig fram og tjáði sig um Marciano hafa fleiri konur sagt sögur af honum á Twitter.

Kate Upton hefur verið í nokkrum herferðum fyrir Guess. Í samtali við TMZ sagði hún að hún sé spennt fyrir því að sagan komi öll fram í heild sinni og gaf í skyn að það væri ekki langt þangað til. Hlutabréf Guess hafa hrunið niður um 18 prósent frá því á fimmtudag samkvæmt frett á vef CNN. Guess ætlar að skoða málið og athuga hvort grípa þurfi til aðgerða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.