Þingmenn demókrata í báðum deildum Bandaríkjaþings hafa varað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við að reka háttsetta embættismenn sem sjá um Rússarannsóknina svokölluðu. Washington Post greinir frá.
Í yfirlýsingu þingmanna er vísað í hið svokallaða „Laugardagsfjöldamorð“ sem átti sér stað árið 1973 þegar þáverandi forseti Bandaríkjanna, Richard Nixon, rak Archibald Cox, sérstakan saksóknara í Watergate-málinu. Dómsmálaráðherra og aðstoðardómsmálaráðherra Nixon sögðu af sér frekar en að verða við skipun forsetans.
„Brottrekstur Rod Rosenstein, yfirmanna í dómsmálaráðuneytinu eða Bob Mueller, gæti leitt af sér stjórnarkreppu sem hefur ekki sést síðan í Laugardagsfjöldamorðinu,“ segir í yfirlýsingu demókrata.
Sjá einnig:Aðgerðum repúblikana líkt við alræmt augnablik Watergate-hneykslisins
Trump er sagður vilja losna við Rod Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra, en hann er æðsti yfirmaður Rússarannsóknarinnar svokölluðu sem verið hefur Trump þyrnir í augum. skipaði hann Robert Mueller, sérstaks rannsakenda dómsmálaráðuneytisins sem leiðir rannsóknina á því hvort framboð Trump hafi átt samráð við útsendara Rússa.
Forsetinn heimilaði í dag birtingu umdeilds minnisblað sem Trump og repúblikanar segja að sýni fram á að FBI og dómsmálaráðuneytið hafi misbeitt valdi sínu í tengslum við Rússarannsóknina. Eru þessar fullyrðingar þó mjög dregnar í efa af demókrötum, sem og embættismönnum FBI og dómsmálaráðuneytisins.
Sjá einnig:Eldfimar ásakanir í minnisblaðinu umdeilda
Telja embættismenn ekki ólíklegt að Trump muni nota minnisblað sem átyllu til að reka Rosenstein í von um að þar með verði bundinn endir á Rússarannsóknina.
Endurtaki sagan sig og reki Trump Mueller eða Rosenstein er þó ekki víst að honum verði að ósk sinni. Aðeins tíu mánuðum eftir að Nixon lét reka Cox hafði hann sagt af sér embætti. Almenningur brást ókvæða við fregnunum og neyddist Nixon til þess að skipa nýjan sérstakan saksóknara, auk þess sem að þingið setti aukinn kraft í rannsókn á Watergate-málinu, sem á endanum leiddi til afsagnar Nixon.
Vara Trump við að feta í fótspor Nixon

Tengdar fréttir

Eldfimar ásakanir í minnisblaðinu umdeilda
Njósnamálanefnd Bandaríkjaþings hefur birt hið umdeilda minnisblað sem verið hefur í umræðunni í Bandaríkjunum undanfarna daga. Í því má finna eldfimar ásakanir í garð Bandarísku alríkislögreglunnar og dómsmálaráðuneytisins.

Trump sakar æðstu löggæslustofnanir Bandaríkjanna um hlutdrægni
Í tístum fullyrðir Bandaríkjaforseti að FBI og dómsmálaráðuneytið dragi taum demókrata og sé hlutdrægt gegn repúblikönum.

Aðgerðum repúblikana líkt við alræmt augnablik Watergate-hneykslisins
Einn blaðamannanna sem afhjúpaði Watergate-hneykslið segir að atburða gærdagsins gæti orðið minnst á sama hátt og "laugardagsfjöldamorðs“ Richards Nixon.