Stjörnuspá Siggu Kling - Fiskarnir: Alls ekki treysta á neitt eða neinn nema sjálfan þig 2. febrúar 2018 09:00
Elsku Fiskurinn minn, andlegra merki er ekki hægt að finna. Það er svo mikið og stórbrotið listrænt eðli og orka í karakternum þínum. Þú ert að fara inn í svo merkilega tíma næstu þrjá mánuði, en þú þarft sjálfur að nálgast það fólk sem þér finnst geta breytt lífi þínu. Þú átt ekki að bíða eftir breytingum heldur hefurðu kraftinn núna til að gera breytingar með því að vera ákveðinn og vaða í gegnum skaflinn. Alls ekki treysta á neitt eða neinn nema sjálfan þig til þess að breyta lífi þínu svo þú sjáir að þú hefur nákvæmlega núna þann dásamlega kraft til að breyta þínum eigin örlögum. Að sjálfsögðu er ekki ákveðið fyrirfram hvernig líf þitt verður því þá hefur þú náttúrulega enga stjórn og gætir verið í móki allt þitt líf að bíða eftir örlögunum. Þú þarft þess vegna að taka til þinna ráða og takast á við það fólk sem mun gefa þér það sem þú þarfnast. Ekki hugsa of lengi um hvernig þú vilt gera hlutina heldur skaltu vaða í þá persónu sem ræður því. Þannig færð þú það hugrekki sem þú þarft yfir þennan tíma og færð vængi eins og fuglinn Fönix og finnur þá dásamlegu ást sem hjarta þitt í raun þarfnast og allt það frost sem þér hefur fundist vera í hjarta þínu hverfur þegar þú fyllist þessum hlýja kærleika. Það er mikið um ferðalög fram undan og þú ert að plana árið 2018 alveg á fullu. Þessi ferðalög eiga eftir að gefa þér eitthvað sérstakt og óvanalegt og þú verður ríkari í hjarta þínu. Það er svo mikilvægt fyrir þig elskan mín að eiga sálufélaga, en stundum þarftu líka bara að viðurkenna að þú ert þinn besti sálufélagi, en sért tilbúinn að leyfa þeim sem dýrkar þig og dáir að koma inn í þennan heim sem þú hefur. Orka þín til að hafa ást er mjög sterk næstu 3-4 mánuði, en þú þarft svo sannarlega að muna að þú þarft að breyta mörgu til að hleypa einhverjum alveg að hjarta þínu og muna að þegar ástin kemur þá er hún einföld, auðveld og hreinlega bara gerist. - Love never felt so good (Justin Timberlake, sem er líka í fiskamerkinu) Kossar og knús – þín Sigga KlingFrægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla, Nanna Lovísa dýranuddari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Bein útsending: Bingó Blökastsins Lífið Er alltaf hrædd Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Fleiri fréttir Bein útsending: Bingó Blökastsins Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Sjá meira