Lífið

Hið vinsæla góðgerðarhlaup Wings for Life haldið í fyrsta sinn á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ástralir þurfa að hlaupa að nóttu til og eru því með höfuðljós í hlaupinu
Ástralir þurfa að hlaupa að nóttu til og eru því með höfuðljós í hlaupinu
Wings for Life hlaupið fræga verður haldið í fyrsta skipti hér á landi sunnudaginn 6. maí næstkomandi. Um er að ræða alþjóðlegt átak en allur ágóði af hlaupinu rennur til rannsókna á mænuskaða.

Yfir 50 lönd taka þátt í hlaupinu að þessu sinni en rástíminn er sá sami um allan heim, kl. 11:00 að íslenskum tíma. Mörg lönd þurfa því að hlaupa um miðja nótt en Íslendingar eru heppnir með tímasetninguna.

Í fyrra söfnuðust yfir 800 milljónir króna á heimsvísu en allur ágóði hlaupsins rennur til góðgerðarstofnunarinnar Wings for Life sem vinnur að því að finna lækningu við mænuskaða. Það er því ánægjulegt að Íslendingar fá tækifæri til þess að taka þátt í þessu heimsþekkta hlaupi og í leiðinni látið gott af sér leiða.

Eina hlaupið sinnar tegundar á Íslandi

Hlaupið er óvenjulegt að því leyti að það er ekkert fyrir fram ákveðið endamark. Til þess að skrá sig í hlaupið þarf að sækja Wings for Life World Run appið. Appið er svo notað sem mikilvægur þáttur í hlaupinu þar sem „eltibíll“ í appinu keyrir af stað hálftíma eftir að hlaupið hefst og reynir að ná keppendum. Bíllinn ekur um á 15 km/klst en þegar bíllinn tekur fram úr keppenda er hann eða hún sjálfkrafa úr leik.

Wings for Life World appið:

Fyrir iPhone notendur

Fyrir Samsung notendur

Skráning í hlaupið er hafin og kostar 20 evrur að taka þátt eða um 2.400 íslenskar krónur. Hlaupið verður í kringum Rauðavatn en hringurinn er um 7 km að lengd. Það verður því hlaupið hring eftir hring þar til eltibíllinn nær keppendum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×