Arsenal einum fleiri í 80 mínútur en náði einungis jafntefli │ Marseille í kjörstöðu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. apríl 2018 21:00 Arsenal-menn niðurlútir eftir jöfnunarmark Atletico. vísir/afp Atletico Madrid náði inn mikilvægu útivallarmarki er liðið gerði 1-1 jafntefli við Arsenal á Emirates í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Það byrjaði ekki byrlega fyrir Atletico Madrid því strax á tíundu mínútu hafði Sime Vrsaljko fengið tvö gul spjöld. Þar af leiðandi var hann sendur í sturtu og allt sauð upp úr. Diego Simeone, stjóri Atletico, var algjörlega brjálaður og gekk berserksgang á hliðarlínunni. Dómarateymi leiksins fékk nóg og sendi Simeone upp í stúku. Staðan var þó markalaus í hálfleik. Fyrsta markið kom ekki fyrr en eftir klukkustund þegar Alexandre Lacazette skallaði fyrirgjöf Jack Wilshere laglega í netið og flestir héldu að Arsenal myndi láta kné fylgja kviði. Svo var ekki. Á 82. mínútu jafnaði Antoine Griezmann metin eftir ömurleg mistök í vörn Arsenal er Laurent Koscielny gerði sig sekan um slæm mistök. Allt jafnt og lokatölur 1-1. Marseille er í góðri stöðu í hinni viðureigninni en liðið lagði Salzburg 2-0 á heimavelli. Florian Thauvin skoraði í fyrri hálfleik og Clinton Njie bætti við marki í síðari hálfleik. Síðari leikir liðanna fara fram næstkomandi fimmtudag. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti