Lífið

Bílstjóri gleður farþega og skreytir vagninn á tyllidögum

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Össur Pétur Valdimarsson glaðbeittur í vinnunni.
Össur Pétur Valdimarsson glaðbeittur í vinnunni. Fréttablaðið/ernir
Farþegar og fótboltaunnendur sem ferðast með leið ellefu hjá Strætó eiga á góðu von næstu daga. Vagnstjórinn Össur Pétur Valdimarsson hefur undirbúið ýmiss konar uppátæki fyrir HM. Hann mun skreyta vagninn og sjá til þess að stemningin verði góð í vagninum á meðan á leikjum stendur.

„Ég er líklega einn heitasti stuðningsmaður íslenska landsliðsins, ég verð að keyra á laugardaginn þegar liðið etur kappi við Argentínu og hlusta á leikinn í vagninum. Ég vil sýna strákunum stuðning en líka bjóða upp á góða stemningu fyrir farþega,“ segir Össur Pétur sem segist njóta starfsins.

Sjá einnig: Uppátækjasamur strætisvagnabílstjóri

Hann hefur unnið sem vagnstjóri í fjölda ára og gæti vart hugsað sér að gera annað. „Mér finnst mjög gefandi að gleðja fólk. Ef ég get glatt fólk sem er illa fyrirkallað, fengið það til að brosa, þá finnst mér dagurinn vel heppnaður,“ segir Össur Pétur. „Ég er nú samt bara mannlegur líka. Ef það er eitthvað sem veldur mér hugarangri í vinnunni þá er það vont viðhald á vegum og umferðarteppur. En það leysist allt, það eru allir af vilja gerðir, maður verður að trúa því og passa upp á góða skapið.“

Hann tekur fram að hann geri engan greinarmun á liðum karla og kvenna. „Ég er líka einlægur aðdáandi kvennalandsliðsins og skreyti vagninn eða tek upp á einhverju skemmtilegu þegar þær eiga í stórum viðureignum. Hér í þessum vagni er sko ekki gert upp á milli kynja, ég á sjálfur bæði strák og stelpu og gæti vel að þessu,“ segir Össur Pétur. 


Tengdar fréttir

Strætóbílstjóri lét farþega hlaupa apríl

Farþegum um borð í strætisvagni, nánar tiltekið leið 11, brá heldur betur í brún í gær þegar vagnstjórinn stöðvaði skyndilega vagninn við stoppistöð á Fríkirkjuvegi og bað alla um að fara út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.