Félögin tvö hafa krafið Valitor um milljarða króna í skaðabætur vegna ólögmætrar riftunar kortafyrirtækisins á greiðslugáttarsamningi fyrir Wikileaks árið 2011. Sýslumaður hefur tvívegis hafnað kyrrsetningarkröfu félaganna auk þess sem héraðsdómur hefur staðfest þá niðurstöðu. Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors, segir í samtali við Markaðinn að hlutafjárhækkunin sé í takt við vaxtaáform félagsins. „Við erum að vaxa mikið þessi misserin og þetta er liður í að styðja við þann vöxt,“ nefnir hann.
Viðar neitar því aðspurður að hlutafjárhækkunin tengist kyrrsetningarbeiðni Datacell og Sunshine Press Productions með einum eða öðrum hætti. „Nei, skýringin er aðeins sú að við erum í mikilli uppbyggingu og þetta er hluti af því að styðja við hana.“ Í bréfi Valitors til sýslumanns, sem Markaðurinn hefur undir höndum, er tekið fram að móðurfélagið hafi skuldbundið sig til þess að greiða fyrir hlutaféð innan þrjátíu daga. Í kjölfarið verði fyrirtækjaskrá tilkynnt um hlutafjárhækkunina.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Productions, segir aðspurður um þær upplýsingar sem fram komi hjá Viðari um hlutafjárhækkun Valitors að skýringar forstjórans á ástæðum hækkunarinnar standist ekki. Ljóst sé að félagið hafi þurft að forða sér frá kyrrsetningu með því að hækka hlutafé sitt um 750 milljónir króna. Tal um aðrar skýringar á hlutafjárhækkuninni standist ekki nánari skoðun.

Önnur mynd blasir nú við
„Í mars taldi sýslumaður ekki tilefni til þess að samþykkja kyrrsetningarbeiðni vegna þáverandi fjárhagsstöðu félagsins,“ nefnir Sveinn Andri. „Önnur mynd blasir hins vegar við félaginu nú og því var gripið til þeirrar skyndilegu ráðstöfunar að setja 750 milljónir inn í félagið í formi nýs hlutafjár til þess að koma félaginu í jafna stöðu á við það sem það var í mars á þessu ári. Þannig að það yrði ekki ástæða fyrir sýslumann að breyta frá fyrri ákvörðun sinni,“ útskýrir hann.Fram kom í Markaðinum í maí að tap Valitors hf. hefði numið ríflega 422 milljónum króna fyrir skatta á fyrsta fjórðungi ársins. Til samanburðar tapaði félagið um 66 milljónum á sama tímabili í fyrra. Sem kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu á árinu 2013 að Valitor hefði brostið heimild til þess að loka umræddri greiðslugátt en Datacell og Sunshine Press Productions önnuðust rekstur gáttarinnar.
Deila félaganna og Valitors hefur einkum snúist um þær forsendur sem leggja eigi til grundvallar við mat á fjártjóni og þar með fjárhæð skaðabóta. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafnaði í mars kröfu félaganna um að kyrrsettar yrðu eignir Valitors fyrir ríflega 6,4 milljarða króna á þeirri forsendu að staða kortafyrirtækisins hefði ekki versnað og að lækkun eigin fjár þess væri til þess að gera lítil. Héraðsdómur staðfesti, líkt og áður sagði, þá niðurstöðu. Sýslumaðurinn komst að sömu niðurstöðu síðasta föstudag. Í tilkynningu Valitors vegna málsins kom fram að langstærstur hluti krafna félaganna á hendur Valitor væri krafa Sunshine Press Productions en félagið hefði aldrei átt í viðskiptasambandi við Valitor. Auk þess hefðu tekjur félagsins verið hverfandi litlar.