Tími fyrir sögu Hafþór Sævarsson skrifar 27. júlí 2018 13:45 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur nú kosið að blanda sér opinberlega í samtal okkar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hæstarréttarlögmanns, varðandi það hvort sá síðarnefndi sé vanhæfur sem verjandi í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna. Jón Steinar þorði raunar ekki að svara ásökun minni um vanhæfni öðruvísi en að láta eins og hún hafi aldrei verið borin upp – svo viðkvæmt er málefnið fyrir Jón. Þess í stað notaði hann orðið „vanbúinn,” svona eins og Jón sé bara ekki í stígvélunum þegar hann veður yfir ána. Í framhaldinu blandaði svo Davíð Oddsson sér í umræðuna eftir að maður nokkur lét í sér heyra. Maður sem gengur undir nafninu Sigurfreyr, þó hann heiti Guðmundur Jónasson síðast þegar ég vissi, kom fram með sögu um föður minn, Sævar M. Ciesielski. Þetta var saga sem enginn af þeim sem stóðu pabba næst höfðu heyrt áður. Davíð Oddsson kvittaði svo uppá þá sögu í framhaldinu. Það er hins vegar ekki á hverjum degi að Davíð Oddsson lætur í sér heyra – hvað þá að huldumenn dragi hann til þess. Það skyldi þó ekki vera að slíkt komi fyrir, þegar kóngur stendur í skák? Jón Steinar, huldumaðurinn og Davíð Oddsson njóta nú allir þess vafasama heiðurs, að hafa baðað sig í dýrðarljóma réttlætisbaráttu föður míns. Þremenningarnir vilja allir Sævar hafa kveðið. Það er allt gott og blessað í sjálfu sér. Það gátu þeir þó ekki öðruvísi gert en með því að vanvirða minningu hans á sama tíma. Hvernig þá? Bæði huldumanninum og Davíð fannst í fínasta lagi að brjóta almenn lögmál um hvernig er talað um fundi og samtöl með hinum látna. Það er nefnilega svo að til eru einfaldar meginreglur um góða siði í þeim efnum sem allir þekkja. Það stórhlægilega við þetta er að þeir geta ekki falið vanvirðingu sína á föður mínum á sama tíma og þeir nota lífsbaráttu hans sér til framdráttar. Það er ýmislegt við sögu þeirra tvímenninga, Davíðs og huldumannsins, út á að setja, en hún fjallar um meintan peningastyrk Davíðs til föður míns. Ástæðulaust er fyrir mig að rekja það; ætli ég leyfi þeim ekki bara að eiga þessa hetjusögu núna – í bili allavega. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skipti sem menn leyfa sér að brjóta allar grundvallarreglur um lágmarksvirðingu þegar kemur að æru föður míns, honum Sævari heitnum. Þann 29. júlí árið 2011 birtist óvænt kveðja frá Morgunblaðinu. „Minningargrein” um föður minn var birt á miðju opnu við hlið leiðara ritstjóra Morgunblaðsins. Greinin var birt sama dag og kistulagningin fór fram, fjórum dögum á undan útför. Það er fordæmislaust að birta minningargrein áður en menn hafa verið lagðir til hinstu hvílu, það er aldrei gert af virðingu við aðstandendur. Skrif þessi er þó ekki hægt að flokka sem minningargrein - nema að forminu til. Af efninu að dæma var þetta yfirlýsing um að ekkert framhald yrði á málunum alræmdu. Fyrir utan ósómann sem Bragi bóksali var fenginn til að skálda af hinum mesta subbuskap, var þar að finna óvænta lögfræðilega samsuðu í miðri grein. Út frá greininni er ekki annað að sjá en að Bragi þessi sé sérfróður aðili um takmarkað valdsvið hæstaréttar og skrifar hann af fullu öryggi eins og hæstarréttarlögmaður um hvenær dómstóll getur gengið gegn ,,settum” lögum og önnur lögfræðileg álitaefni. Sömuleiðis var greinarhöfundi umhugað valdsvið háttvirts dómsmálaráðherra þess tíma - Ögmundi Jónassyni - settar staðfestar og kyrfilegar skorður. Lögfræðilegi rökstuðningurinn, í kjarna greinarinnar mitt á milli níðsins í slúðurstíl, leiddi að þeirri niðurstöðu að það væri aldrei hægt að gera neitt meira í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. Ritstjórn Morgunblaðsins, með staðsetningu greinarinnar og fordæmalausri tímasetningu, gæti allt eins hafa skrifað undir yfirlýsinguna sjálf - sem ótækt er að túlka öðruvísi en stríðsyfirlýsingu. Lögfróði aðilinn sem fékk að spreyta sig við hægri hönd Davíðs í yfirlýsingu þessari, afhjúpast með hárfínni greiningu á textabrotinu. Aðili þessi er að öllum líkindum Jón Steinar Gunnlaugsson. Orðavalið í yfirlýsingunni gefur vísbendingar, sbr. „vanbúin” (sjaldgæft orð sem Jón Steinar notaði í grein sinni „Óvænt kveðja,” sem var birt þann 22. júlí 2018 á Vísi) og „vegna [eigin] klaufaskapar,” (sjaldgæft orðasamband sem Jón Steinar notaði í grein sinni „Aðför” sem birtist þann 7. apríl 2016 í Morgunblaðinu) ásamt hugmyndafræði sem er einkennandi fyrir Jón, sbr. „þótt ýmsum virðist dómurinn alloft huga betur að hagsmunum ríkisvalds en gagnaðilja.” Í umboði þessarar duldu stríðsyfirlýsingar hafa svo menn eins og Brynjar Níelsson fengið að leika lausum hala og staðfastlega staðið gegn málstað föður míns. Ritstjórn Morgunblaðsins gaf tóninn. Það er lítill bragur af því að þykjast standa með réttlæti en leynt og ljóst vinna gegn því. Ekkert af þessu skiptir hins vegar máli hvað heildarsamhengið varðar. Við tökum þess vegna ekkert mark á stríðsyfirlýsingum og fyrirgefum vorum skuldunautum. En hvort menn eru tilbúnir að staðsetja sig með heildaruppgjöri þessara mála er svo annað mál. Hvað þýðir heildaruppgjör í þessu samhengi? Það þýðir að það er orðið tímabært að segja sögu. Höfundur er sundlaugarvörður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundar- og Geirfinnsmálin Hafþór Sævarsson Ciesielski Mest lesið Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason skrifar Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Hamingjan grundvallast á gæðum hugsananna Árni Már Jensson skrifar Skoðun Hátt reitt til höggs Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Brennt barn forðast eldinn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Varnir gegn gagnagíslatökum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun