Jeremy Corbyn leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi segir að ný þjóðaratkvæðagreiðsla sé ekki valkostur eins og staðan sé í dag. Það sé aftur á móti valkostur í framtíðinni.
Hann segist ekki vita hvað hann myndi kjósa í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu ef til þess kæmi. Þetta sagði Corbyn í viðtali hjá Sky News.
Corbyn segir að það séu nokkur óásættanleg atriði í Brexit samningsdrögunum og að hann muni samþykkja þau. Þetta sé einstefnusamningur sem skilji öll spil eftir á hendi Evrópusambandsins.
Corbyn segist hafa kosið áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu í kosningunum árið 2016 en bætir við að sambandið þarfnist umbóta og að hann vilji sjá gott og skilvirkt samband við Evrópusambandið
„Ég veit ekki hvað ég myndi kjósa. Ég veit ekki hverjir valkostirnir yrðu á þeim tíma,“ segir Corbyn.
Corbyn segist fyrst og fremst lýsa sjálfum sér sem sósíalista sem vilji sjá félagslegt réttlæti í Bretlandi sem og í Evrópu.
Spurður að því hvort hann vorkenni Theresu May forsætisráðherra Bretlands svarar Corbyn því til að hann skilji þær raunir sem fólkið gangi í gegnum en bætir við að forsætisráðherrann og ríkisstjórnin beri ábyrgð á því að gera það sem til þeirra sé ætlast, til dæmis vinna bug á fátæktarvandanum og krísunni í heilbrigðiskerfinu.
