„Youssou fyllir tónleikastaði um allan heim og hin seiðandi og fjörlega tónlist sem hann býður upp á fyllir hjörtu og sálir fólks af gleði og dansi,“ segir í tilkynningu frá Hörpu vegna tónleikanna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem N‘Dour heldur tónleika á Íslandi. Hann kom fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Festival í Laugardalnum um síðustu aldamót og voru tónleikarnir taldir afar vel heppnaðir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21 að kvöldi 29. ágúst og mun N‘Dour stíga á stokk ásamt stórri hljómsveit.
Miðasala hefst föstudaginn 20.ágúst á harpa.is og tix.is.
Að neðan má hlusta á tónleika N´Dour í Senegal fyrir þremur árum.