Hafa áhyggjur af boðskapnum
Auglýsingin kom út í gær en hún er hluti af átakinu #AllirKrakkar. Fjallað var um átakið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi en með því vilja Stígamót hvetja foreldra til að taka þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Þá er einnig markmið með átakinu að vekja athygli á tengingu milli klámáhorfs og kynferðisofbeldis. Auglýsinguna má sjá í heild hér að neðan.Fljótlega fór að bera á gagnrýni vegna auglýsingarinnar en mörgum finnst að boðskapnum sé ekki komið nægilega vel til skila. Því var velt upp hvort verið væri að senda þau skilaboð að stúlkur gætu ekki birt það sem þær vildu á Instagram og sambærilegum miðlum, án þess að með því væru þær að bjóða upp á kynferðisofbeldi.
Ég skil ekki þessa auglýsingu frá stígamótum. Eigum við að segja stelpunum okkar að hætta að pósta myndum af sér og tjá sig eins og þær vilja á instagram því annars gæti einhver beitt þær kynferðisofbeldi?
— Kratababe93 (@ingabbjarna) October 26, 2018
Er ég úti á túni hérna?
Mér líður eins og ef ég sýni 13ára stjúpdóttur minni nýju auglýsingu Stígamóta þá sendi ég þau skilaboð að ef hún notar instagram eins og hún gerir þá munu ljótu bekkjarfélagar hennar koma og beita hana ofbeldi. Mig langar ekkert að hún fái þau skilaboð. https://t.co/OYlB2eJGHc
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) October 26, 2018
Á mjög mjög mjög erfitt með þessa nýju herferð hjá Stígamótum. Er ábyrgðin farin af þolendum nema ef þolandi er ungmenni? Er ábyrgðin á foreldrum þolenda? Af hverju er spurningunni varpað upp sem foreldrar þolenda vs. geranda?
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) October 26, 2018
Leika eftir fyrirmyndum á samfélagsmiðlum
Anna Bentína Hermansen, ein þeirra sem kom að gerð auglýsingarinnar, hafnar því að auglýsingin sendi slík skilaboð, og segir Stígamót aðeins vilja koma því til skila hvernig fyrirmyndir ungra stúlkna á samfélagsmiðlum hafi áhrif á sjálfsmynd þeirra og –virði.
„Það eru einmitt þessi viðhorf sem stelpur fá, að ef að þær birti myndir af sér á Instagram, að þá séu þær á einhvern hátt að gefa þær vísbendingar að þær vilji eitthvað meira, séu druslur. Það er hrikalegt að ásaka börn um slíkt. En þau eru bara að leika eftir þeim fyrirmyndum sem fyrir þeim er haft á öllum þessum miðlum.“
Viðbrögðin að mestu leyti jákvæð
Anna Bentína segir að þessi upplifun stúlkna af samfélagsmiðlum leiði oft til þess að þær kenni sjálfum sér um kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Hún vísar því á bug að Stígamótum hafi mistekist að koma réttum boðskap á framfæri.„Mér finnst fólk vera að túlka þetta alveg rétt. Stelpur mega taka eins margar myndir af sér og þær vilja, það er í góðu lagi, og strákar mega horfa á eins mikið klám og þeir vilja ef út í það er farið, en eru þetta fyrirmyndirnar sem við viljum að börnin okkar hafi?“
Anna Bentína tekur þó fram að þær hjá Stígamótum geri sér grein fyrir því að myndbandið sé „triggerandi“, og bætir við að þær hafi einmitt búist við þessari umræðu. Þá taki þær gagnrýni fagnandi.
„Flestir eru samt rosalega jákvæðir og við höfum fengið ofboðslega jákvæð viðbrögð við auglýsingunni.“