Lífið

Hanna Rún fékk matareitrun: „Ég hélt að ég myndi deyja“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hanna Rún og Bergþór hafa farið á kostum í þáttunum Allir geta dansað.
Hanna Rún og Bergþór hafa farið á kostum í þáttunum Allir geta dansað. vísir/atli
„Ég er aðeins skárri í dag,“ segir dansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir sem fékk matareitrun í gær. Hún gat því lítið sem ekkert æft fyrir næsta þátt í Allir geta dansað.

„Ég er mætt upp í World Class til að reyna klár að semja lotuna okkar,“ segir Hanna en hún og Bergþór Pálsson hafa unnið hug og hjörtu þjóðarinnar í skemmtiþáttunum Allir geta dansað sem eru á Stöð 2 á sunnudagskvöldum.

„Við erum að labba rútínuna saman í gegn núna. Ég hef ekkert kastað upp í dag, enda er ekki dropi eftir en ég er með rosalega mikla beinverki og orkulaus. Þetta kom upp í gær og þá vaknaði ég með rosalega þaninn maga. Ég og Bergþór byrjum daginn á því að taka æfingu og það gekk bara rosalega vel. Síðan var planið að taka aukaæfingu, en hún stóð bara yfir í tuttugu mínútur og þá varð ég að hlaupa inn á klósett og byrjaði strax að kasta upp þar.“

Eignmaður Hönnu, Nikita Bazev, er staddur erlendis og því fór hún í foreldrahús með einkasoninn.

„Ég varð að fara til mömmu og pabba með litla strákinn. Þau voru svona að hjálpa mér að mata hann, koma honum í háttinn og á leikskólann og svona. Ég gat bara ekki labbað og var með mikinn krampa og ótrúlega mikla beinverki. Ég hélt að ég myndi deyja, þetta var algjört ógeð.“

Hún segist hafa kastað upp linnulaust í sex klukkustundir.

„Við náðum ekki að klára að semja sporin í gær og núna erum við að labba í gegnum þetta, svo Bergþór geti allavega tekið þetta upp á myndband og æft sig sjálfur.“

Parið dansar saman Quick-Step á sunnudagskvöldið og er það talin einn erfiðasti dansinn í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.