Fyrsta vetrarfrí enska boltans verður árið 2020 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2018 13:30 Mohamed Salah í leik með Liverpool á móti Everton í snjókomu. Vísir/Getty
Enska knattspyrnusambandið, enska úrvalsdeildin og ensku neðri deildirnar eru svo gott sem búin að ná samkomulagi um vetrarfrí í enska fótboltanum en þetta kemur fram á Sky Sports. Englendingar hafa talað lengi um að fá inn vetrarfrí eins og í helstu deildum í Evrópu en það er aldrei spilað þéttar í enska boltanum en einmitt um jól og áramót. Svo verður reyndar áfram en vetrarfrí enska boltanum verður í byrjun nýs árs nánar tilgetið í kringum mánaðarmótin janúar og febrúar..@SkySportsNews understands the FA, Premier League and EFL are close to agreement over the introduction of a winter break Details: https://t.co/31MyI0bTm0pic.twitter.com/7EOZc702yZ — Sky Sports PL (@SkySportsPL) April 18, 2018 Fyrirkomulagið í ensku úrvalsdeildinni verður þannig að ein umferð fer þá fram á tveimur helgum. Það þýðir að öll liðin fá þrettán daga frí. Sum þeirra spila fyrri helgina og fá þá frí á þeirri næstu og svo öfugt. Sky Sports segir að yfirstjórn enska knattspyrnusambandsins hafi í dag fengið upplýsingar um hvernig viðræðurnar hafi gengið og það sé líklegt að þær gangi í gegn. Það var Martin Glenn, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins, sem lagði þetta til fyrir næstum því tveimur árum og nú eru menn loksins að landa þessu. Fyrsta vetrarfríið á að vera í janúar og febrúar árið 2020. Á móti því að einni umferð sé dreift á tvær helgar þá mun fimmta umferð ensku bikarkeppninnar einnig fara fram um miðja viku. Ef það verður jafntefli í þeim leikjum þá er framlengt og farið í vítaspyrnukeppni í stað þess að spila annan leik eins og nú er.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira